Frelsi til hatursáróðurs?
Ég hef mikinn áhuga á hugtakinu frelsi og þá sérstaklega mismunandi skilningi sem fólk leggur í hugtakið. Flestir eru sammála um að manneskjan eigi að hafa frelsi til að vera sú sem hún er, hafa þær skoðanir sem hún hefur og gera það sem hún vill. Fólk (upp til hópa alla vega) áttar sig líka á því að frelsi fólks hlýtur að takmarkast við að það skerði ekki frelsi annarra. Þannig verður frelsi manneskju sem vill beita ofbeldi að víkja fyrir frelsi þess sem fyrir ofbeldinu yrði til að fá að vera í friði. Um þetta er fólk yfirleitt sammála.
En hvað með frelsi til að hvetja til ofbeldis? Nú er ég ekki lögfræðimenntuð en hef horft á nógu marga bandaríska glæpaþætti til að vita að þeir sem með beinum hætti hafa hvatt til að stuðlað að ofbeldi gagnvart öðrum eru mjög auðveldlega dæmdir fyrir slíkt með tilvísun til laga sem eru æði svipuð í flestum vestrænum ríkjum og þar með í okkar samfélagi.
Í haust tilnefndu Framsókn og flugvallarvinir einstakling í mannréttindaráð sem hafði opinberlega talað með mjög fordómafullum hætti gagnvart ákveðnum trúarbrögðum og ákveðinni kynhneigð. Sú ákvörðun var mikið gagnrýnd og varð til þess að þessi tilnefning var dregin til baka.
Í því ljósi vil ég skoða nýlegan dóm sem felur í sér að ekki var talið löglegt að víkja tilteknum grunnskólakennara frá starfi vegna ummæla hans og skrifa sem báru mjög augljóslega vott um fordóma gagnvart ákveðinni kynhneigð. Í þeim dómi var vísað til þess að fólk hafi frelsi til að tjá skoðanir sínar án afskipta annarra (ekki síst yfirvalda); öðru nafni til málfrelsis.
Ég er yfirleitt fylgjandi málfrelsi og er meinilla við hvers konar forræðishyggju sem miðar að því að stjórna því hvað fólki finnst eða hvað það segir. En að sama skapi er ég MJÖG mikið á móti ofbeldi og hvers konar áróðri eða hvatningu til að stunda það. Mörgum finnst að það að tala um annað fólk sem annars flokks, óeðlilegt, eða guði illa þóknanlegt séu bara eins og allar aðrar skoðanir sem eigi þar með að lúta skoðanafrelsi og málfrelsi. En þar vandast málið all verulega.
Auðvitað getum við sem samfélag ekki stjórnað skoðunum fólks enda hafa rannsóknir í félagssálfræði sýnt að þær stjórnast gjarnan af tilfinningum sem ekkert samfélag á að geta stjórnað. En þurfum við samt ekki sem samfélag að geta haft hemil á hatursfullri orðræðu sem slíkir fordómar bera vott um? Nú er ég ekki svo einföld að telja að til sé fólk sem er fordómalaust með öllu og þá síst af öllu ég. En fordómar þess eðlis að einhver sé óeðlilegur eða minna virði BARA af því að hann er fæddur á ákveðinn hátt sem hann sjálfur ræður ekki við eins og kynhneigð, þjóðerni, fötlun o.s.frv. eru að mínuviti stórhættulegar skoðanir. Ég geri mér fulla grein fyrir því að að það er ekki hægt að „banna“ slíkar skoðanir, en ef manneskja er tekin burt úr mannréttindaráði fyrir slíkt, er þá eðlilegt að manneskja með sams konar skoðanir kenni grunnskólabörnum?
Seinast þegar ég vissi var það hluti af námskrá allra skólastiga að auka þroska nemandans og stuðla að því að hann læri að bera virðingu fyrir öllu fólki óháð þjóðerni, kynhneigð o.s.frv. auk þess sem mannréttindi eru ein af sjö grunnstoðum allra skólastiga. Getur kennari sem trúir því að ákveðin tegund af fólki sé óeðlileg eða minna virði stuðlað að slíku með góðu móti?
Fordómarnir sem hér um ræðir eru skoðanir sem leiða ósjálfrátt til mismununar og geta leitt til hatursáróðurs og þar með ofbeldis. Þess vegna er ég ekki hlynnt því að fólk sem fær að starfa í grunnskólum (eða öðrum menntastofnunum ef því er að skipta) geti opinberlega tjáð sig um slíka fordóma.
Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari og stjórnarmaður í Siðaráði KÍ.
Í pistilinum viðrar Ása Lind eigin skoðanir sem ekki eru endilega skoðanir Siðaráðs í heild.
Grein Ásu Lindar er að finna í Skólavörðunni, 4. tbl. 2015.