Frelsi ein af birtingarmyndum trausts

Svandís Egilsdóttir hlaut styrk úr Rannsóknasjóði Kennarasambands Íslands til að greina vinnulag og birtingarmyndir lærdómssamfélags og skólamenningar í tveimur heildstæðum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Hún hefur lokið rannsókninni og skilað áhugaverðri lokaskýrslu.
Niðurstöður Svandísar benda til fjölbreyttra birtingarmynda samstarfs og vinnulags stjórnenda og kennara um ýmsa þætti skólastarfsins, allt frá einangrandi starfsvenjum og skipulagi til djúprar samvinnu og samvirkni. Húsnæði, skólasagan, aðstæður almennt, hefðir, regluverk, skipulag og ekki síst fólkið og samskiptin höfðu m.a. áhrif á menningu skólanna og það sem gert var. Vinátta, gleði og traust í teymum í skólunum, voru nokkrar af forsendum upplifunar starfsfólks af jákvæðri skólamenningu sem einnig hvatti til hollustu þeirra við skólann og tilfinningu einstaklinga í teymum fyrir því að tilheyra hópi og starfsstaðnum í heild. Rétt er að nefna að heimsafaraldur Covid-19 hafði áhrif á verklag og samstarf kennara þann tíma sem rannsóknin var gerð.
Svandís fór í vikulanga vettvangsathugun í hvorn skóla við gagnaöflun en einnig voru nýtt til greiningar samtöl úr rýnihópum kennara og stjórnenda. Á vettvangi og í samræðum í rýnihópum var horft sérstaklega til vinnulags og samstarfs kennara og stjórnenda, skipulags, hefða og viðhorfa. Skólarnir höfðu nýlega tekið þátt í mælingu á stöðu sinni sem lærdómssamfélag og komið vel út í þeirri mælingu, en rannsókninni sem hér um ræðir var ætlað að koma að þróun þess mælitækis.
Hefðavald og hefðamenning
Fram kemur í skýrslu Svandísar að við útfærslu kennslu upplifi kennarar mikið frelsi og jafnframt var það frelsi ein af birtingarmyndum trausts sem viðmælendur upplifðu ríkjandi á milli kennara og stjórnenda. Vísbendingar voru einnig til staðar sem benda til að frelsi kennaranna og viðhorf viðmælenda til þess geta sett skólaþróun og íhlutun stjórnenda ákveðnar skorður. Frelsi við kennslu virðist af niðurstöðum einnig geta tengst hugmyndum kennara um fagmennsku þeirra. Birtist það viðhorf mögulega sem ákveðin þversögn í gögnum er kemur að því að efla fagauð skólanna og skólamenningu út frá einkennum faglegs lærdómssamfélags og hugmyndum Hargreaves og Fullan (2012) um eflingu fagauðs í þágu árangurs nemenda.
„Kennslufræðileg áhrif stjórnenda komu aðallega fram sem óbein forysta en stjórnendur nýttu í ákveðnum tilvikum verklag til að dreifa forystu og ábyrgð og gerðu þá starfsþróun mögulega í daglegu starfi kennara. Viðbragðshamur einkenndi birtingamynd beinnar íhlutunar stjórnenda, en vilji þeirra til að eiga í beinu samstarfi um kennslu og fagleg málefni var til staðar. Meðal annars var tímaskortur nefndur sem ástæða óbeinnar kennslufræðilegrar forystu þeirra. Vísbendingar voru jafnframt um nokkuð sterkt hefðavald og hefðamenningu í báðum skólum en birtist að hluta til með ólíkum hætti í skólum. Hefðir eru tvíeggja sverð í skólastarfi skólanna, þær meðal annars hjálpa til við stjórnun, auka á fyrirsjánleika og spara tíma en geta sett þróun skólastarfs skorður og mögulega hindrað framgang hvors skóla sem faglegt lærdómssamfélag, segir Svandís.
Verkaskipting áberandi
Svandís segir að kennurum hafi í flestum tilvikum vettvangsheimsókna í bekki mátt helst lýsa sem fræðandi verkstjórum sem leiða verkefni kennslustundarinnar og aðstoða nemendur í skólastofum. Nemendur unnu yfirleitt hlið við hlið í minni hópum en að einstaklingsverkefnum. Þetta var þó ekki algilt, einnig voru dæmi um að skipulagt hafði verið merkingarbært nám hjá nemendum sem áttu þá í frjórri skapandi, samvinnu og samskiptum um námið og sameiginlega afurð þess. „Í báðum skólum unnu kennarar í teymum um undirbúning kennslu árganga. Kennarar sem heimsóttir voru unnu yfirleitt einir að kennslunni sjálfri. Yfirleitt voru hvorki list- og verkgreinakennarar, né íþróttakennarar hluti af árgangateymum og áttu ekki djúpu teymissamstarfi við umsjónarkennara um kennslu árgangs eða undirbúning í heild. Undantekning á þessu var þó nefnd í ákveðnum verkefnum sem skipuðu sérstakan sess í skólastarfinu,“ segir Svandís.
Verkaskipting meðal kennara var, að sögn Svandísar, áberandi í undirbúningi þeirra undir kennslu og var metið ásamt upplifun af stuðningi sem kostir teymisstarfsins. Áberandi var að umræður á undirbúningsfundum snéru að skipulagi um það sem átti næst að fara fram í kennslustund [skipulag um hvað] eða hvenær ákveðinn námsþáttur átti að vera kenndur eða ákveðið efni ætti að leggja fyrir. Síður var rætt um kennsluaðferðir, það er hvernig ætti að framkvæma, með hvaða aðferðum eða hvers vegna.
Vilji til samstarfs
Svandís valdi rannsókninni undirtitilinn: „Frá einangrandi starfsháttum til samvinnu og samvirkni,“ þar sem vísbendingar eru um í niðurstöðum að í skólunum sem hér um ræðir eigi sér stað menningarbreyting frá einangrandi starfsháttum til samvinnumenningar. „Breytingin virðist þó ekki gerast eins eða á sama hraða í báðum skólum, enda forsendur í starfi skólanna og margt í umhverfi þeirra ekki sambærilegt. Sameiginlegt og jákvætt er þó að eitt af einkennum í menningu skólanna er að vilji til samstarfs er til staðar sem og traust og stuðningsrík tengsl í grunni starfa þeirra sem koma saman á hvorum stað fyrir sig,“ segir í skýrslu Svandísar.
Svandís segir að ef til vill geti almennt dálæti á hefðum, hefðbundnu verklagi og hefðamenningu sem og jákvæðum viðhorfum til rótgróinna eldri viðhorfa til kennsluhátta, fagmennsku kennara, fagmúra og faggreina, hins vegar unnið á móti starfsfólki og menningu skólanna í viðleitni þeirra til þess að eflast enn frekar sem lærdómssamfélag.
Heimild: Hargreaves, A. og Fullan, M. (2012). Professional capital: Transforming teaching in every school. Teachers Collage Press.