Framúrskarandi kennarar verðlaunaðir

Fréttir|7. nóvember 2024
Verðlaunahafarnir ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni ráðherra, Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur rithöfundi og Ásmundi Einari Daðassyni ráðherra.

Íslensku menntaverðlaunin 2024 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, í gærkvöld, miðvikudaginn 6. nóvember, að viðstaddri Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.

Sýnt var frá afhendingunni á RÚV. Verðlaunin voru veitt í fimm flokkum: Fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun. Þá voru sérstök hvatningarverðlaun. Hér er hægt að sjá allar tilnefningar til verðlaunanna árið 2024.

Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur

Verðlaunin eru veitt menntastofnun sem stuðlað hefur að umbótum er þykja skara fram úr. Í ár komu þau í hlut Fellaskóla í Reykjavík fyrir fjölmenningarlega og skapandi kennsluhætti þar sem byggt er á virðingu fyrir félagslegum og menningarlegum margbreytileika.

Í Fellaskóla eru töluð um 30 tungumál og litið svo á að fjölbreytileikinn auðgi skólastarfið. Skólinn hefur, undanfarin ár, starfað markvisst að því að þróa sig áfram undir kjörorðinu Draumaskólinn Fellaskóli, en leiðarljós þess verkefnis felast í áherslu á málþroska og læsi, leiðsagnarnám, tónlist og skapandi skólastarf, segir á vef Stjórnarráðsins.

 

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, ásamt fulltrúum Fellaskóla, Erzen Veseli og Milönu Navickaite, fulltrúum nemenda og Helga Gíslasyni skólastjóra. 

 

Framúrskarandi kennari

Verðlaunin eru veitt kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Í ár var það Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ, sem hlaut verðlaunin fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt.

Í umsögn um kennslu hennar segir meðal annars: 

Hrafnhildur gerir hverja kennslustund að ævintýri, hvort sem um er að ræða hefðbundin verkefni eða í fjörunni, á kajak, í fjallgöngu eða í útieldun. Ósjaldan má sjá nemendur Sjálandsskóla setja upp tjöld í nágrenninu, hjóla upp í Heiðmörk eða skoða lífríkið í flæðamálinu.

Nemendur sem af einhverjum ástæðum hafa átt erfitt uppdráttar í skólanum hafa notið aðstoðar Hrafnhildar. Hún hefur einstakt lag á því að nálgast nemendur, styrkja þá félagslega og bæta líðan.

Framúrskarandi þróunarverkefni

Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Snjallræði, þróunarverkefni Helgafellsskóla í Mosfellsbæ hlaut verðlaunin í ár fyrir heildstæða nýsköpunarkennslu sem nær frá leikskólastigi til unglingastigs.

Í umsön segir meðal annars:

Markmiðið er að nemendur þjálfist í skapandi og gagnrýninni hugsun. Þarna reynir á samskipti og félagsfærni í gegnum raunveruleg vandamál, eins og að hanna ný samtökutæki, setja fram hugmyndir um draumaskólann, minnka plastmengun í hafinu, vinna gegn matarsóun, stuðla að auknu jafnrétti eða hvernig nemendur geti gert heiminn að betri stað.

Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun

Verðlaunin eru veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Í ár komu þau í hlut Verkmenntaskóla Austurlands fyrir að efna til samstarfs við grunnskólana í Fjarðabyggð um framboð á fjölbreyttum verklegum valgreinum.

Öllum nemendum í 9. og 10. bekk grunnskólanna í sveitarfélaginu er boðið að sækja tvö verkleg námskeið í Verkmenntaskólanum. Meðal námskeiða sem nemendum hefur verið boðið að taka eru námskeið um húð og hár, myndbandsgerð, forritun, trésmíði, rafmagnsfræði, véltækni og málmsmíði.

Mikil ánægja hefur verið með verkefnið frá upphafi en það hófst fyrir þremur árum og hefur skilað auknum áhuga á iðn- og starfsnámi og aðsókn aukist jafnt og þétt.

Nemendur sem af einhverjum ástæðum hafa átt erfitt uppdráttar í skólanum hafa notið aðstoðar Hrafnhildar. Hún hefur einstakt lag á því að nálgast nemendur, styrkja þá félagslega og bæta líðan.

Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun

Verðlaunin eru veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Í ár komu þau í hlut Verkmenntaskóla Austurlands fyrir að efna til samstarfs við grunnskólana í Fjarðabyggð um framboð á fjölbreyttum verklegum valgreinum.

Öllum nemendum í 9. og 10. bekk grunnskólanna í sveitarfélaginu er boðið að sækja tvö verkleg námskeið í Verkmenntaskólanum. Meðal námskeiða sem nemendum hefur verið boðið að taka eru námskeið um húð og hár, myndbandsgerð, forritun, trésmíði, rafmagnsfræði, véltækni og málmsmíði.

Mikil ánægja hefur verið með verkefnið frá upphafi en það hófst fyrir þremur árum og hefur skilað auknum áhuga á iðn- og starfsnámi og aðsókn aukist jafnt og þétt.

Hvatningarverðlaun

Hvatningarverðlaunin eru veitt einstaklingi, hópi eða samtökum sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Í ár komu þau í hlut Bergmanns Guðmundssonar, verkefnastjóra við Brekkuskóla og Giljaskóla á Akureyri og Hans Rúnars Snorrasonar, kennara við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, fyrir margháttað framlag, leiðsögn og stuðning við kennara og nemendur um allt land við að nýta upplýsingatækni með árangursríkum hætti.

Þeir hafa meðal annars haldið úti vefsíðunni Snjallkennslan frá 2018 þar sem þeir hafa miðlað fjölbreyttum hugmyndum um notkun upplýsingatækni í kennslu, sett upp leiðbeiningar, kynnt öpp og forrit sem nýtast í námi og kennslu og verkefni sem hægt er að aðlaga mismunandi aðstæðum, ekki síst fyrir nemendur sem standa höllum fæti í námi. Þeir hafa leiðbeint kennurum um notkun gervigreindar og unnið að gerð verkfæra sem efla orðaforða og málskilning nemenda.

Í umsögn um framlag þeirra segir meðal annars:

Þeir hafa verið einstakar fyrirmyndir í notkun á rafrænum verkfærum sem gera líf nemenda, foreldra og skólafólks auðveldara og skilvirkara.


Eftir athöfnina á Bessastöðum undirrituðu þeir aðilar sem að verðlaununum standa nýtt samkomulag um verðlaunin. Hulda Dögg Proppé. aðjunkt við Menntavísindasvið HÍ, Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ og Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, voru á meðal þeirra.