Framtíðin og menntun
Kennarasambandið vekur athygli á að í haust verður á vegum Kennaradeildar Menntavísindasviðs Háskóla Íslands boðið upp á áhugavert námskeið sem ber nafnið „Framtíðin og menntun“. Í kynningarbréfi sem Jón Torfi Jónasson, kennari á námskeiðinu, hefur sent Kennarasambandinu er námið kynnt svona:
„Ágæta áhugafólk um menntun. Á vegum Kennaradeildar Menntavísindasviðs mun ég í haust bjóða upp á námskeið þar sem fjallað verður um hugmyndir um framtíðina og hvernig skólakerfi og skipulögð menntun gæti tekið mið af slíkum hugmyndum. Námskeiðið er einingabært og byggist á stöðugu framlagi þátttakenda og umræðu um efnið. Námskeiðið er stakt námskeið fyrir starfandi kennara og aðra sem starfa að menntamálum (ekki hluti af sérskipulögðu prógrammi) eða er áhugafólk um menntun. Skráningu lýkur 30. júní. Mig langar mjög til að fá inn í umræðuna áhugasamt fólk um menntun og helst sem fjölþættust sjónarmið. Ég bendi á að námskeiðið fjallar ekki endilega um framtíð menntakerfis heldur frekar um hvernig menntun gæti tekið mið af fjölþættri þróun á mörgum sviðum“.