Framtíðarstarfið hlaut Orðsporið 2017

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Orðsporið 2017 – hvatningarverðlaun við hátíðlega athöfn í leikskólanum Hofi við Gullteig í dag.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Orðsporið 2017 – hvatningarverðlaun við hátíðlega athöfn í leikskólanum Hofi við Gullteig í dag. Það var Framtíðarstarfið – átaksverkefni um eflingu leikskólastigsins sem hlaut verðlaunin.
Framtíðarstarfinu var hleypt af stokkunum árið 2014 og er markmið þess að efla jákvæða ímynd leikskólans og fjölga þeim sem leggja fyrir sig nám í leikskólakennarafræðum.
Að mati valnefndar um Orðsporið 2017 hafa samstarfsaðilar um átaksverkefnið Framtíðarstarfið unnið ötullega að málefnum leikskólans og kynnt það sem vænlegt framtíðarstarf. Þá þykir vefsíða Framtíðarstarfsins afar vel heppnuð, framsetning er lífleg en um leið afar fræðandi. Valnefndin segir jafnframt að fjöldatölur háskólanna sýni að ásókn í námið hefur aukist á því tímabili sem átakið hefur staðið.
„Allir geta verið sammála um að mikilvægt er að efla leikskólastigið enda hagsmunamál að hafa vel menntaða starfsmenn í leikskólum landsins. Það mun án efa skila sér í auknum gæðum í skólastarfinu og fagmennsku og um leið styrkja leikskóla sem áhugaverða vinnustaði. Því er átaksverkefni á borð við Framtíðarstarfið afar mikilvægt og til þess fallið að efla orðspor leikskólakennarastarfsins og breyta afstöðu ungs fólks til starfsins,” segir í umsögn valnefndar.
Arna H. Jónsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ, Kristín Dýrfjörð, dósent við kennaradeild HA, Þórður Árni Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands, Klara E. Finnbogadóttir, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Ásta Magnúsdóttir ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytis, veittu Orðsporinu viðtöku úr hendi forseta.
Orðsporið er veitt á Degi leikskólans, 6. febrúar en haldið er upp á þennan dag í tíunda sinn í dag. Sjötti febrúar er merkilegur dagur í íslenskri leikskólasögu því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Markmið dagsins er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og beina athygli fólks að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum dagsins á degi hverjum. Þetta er fimmta árið sem verðlaunin eru veitt.
Orðsporshafarnir

Aftari röð: Þórður Árni Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands, Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytis, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Fremri röð: Klara E. Finnbogadóttir, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kristín Dýrfjörð, dósent við Kennaradeild Háskólans á Akureyri, og Arna H. Jónsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.