Framlenging á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms lögfest
Tökum höndum saman um að styrkja stoðir tónlistarfræðslu í þágu bættrar menntunar
Alþingi hefur lögfest framlengingu á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms til 31. desember 2014. Samkomulagið felur í sér 520 m.kr. framlag ríkissjóðs til tónlistarfræðslu á árinu 2014.
Í áliti allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis sem fjallaði um lagafrumvarpið segir að það sé skýrt af hálfu ríkisins að framlag ríkisins sé viðbótarframlag til eflingar tónlistarnámi á mið- og framhaldsstigi. Þá ítrekar nefndin í áliti sínu þann skilning að samkomulagið hafi átt að efla og jafna aðstöðu til tónlistarnáms og „áréttar mikilvægi þess að fundin verði ásættanleg lausn og varanleg niðurstaða varðandi fjármögnun tónlistarnáms í stað tímabundinna lausna þar sem skýrt verður hvar ábyrgðin liggur.“
Ný heildstæð löggjöf um tónlistarskóla er í þágu menntunar, menningar og samfélagsins alls
Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistarskólakennara, tekur undir orð allsherjar- og menntamálanefndar og segir afar brýnt að hraða vinnu við heildstæða löggjöf um tónlistarskóla sem marki ramma utan um víðtækt hlutverk þeirra í menntakerfinu og á sviði lista, menningar og samfélagsmála. Félag tónlistarskólakennara hvetur ríkisvaldið og sveitarfélögin til að hefja vinnu við endurskoðun á samkomulaginu um eflingu tónlistarnáms þar sem staðið hefur til að samkomulagið verði lögfest í nýjum lögum um tónlistarskóla.
„Við teljum einnig afar mikilvægt að gerð verði úttekt á framkvæmd samkomulagsins þar sem skoðað verði hvort meginmarkmiðum þess hafi verið náð með það að markmiði að undirbyggja sem best útfærslu á framtíðarfyrirkomulagi þessa málaflokks.“
Rannsóknir sýna að sögn Sigrúnar að tónlistarnám er eitt öflugasta tæki okkar til almenns þroska, það eflir félagsþroska og vitsmuni jafnt sem tilfinningar og sköpunargáfu. Það eflir sjálfsmynd, sjálfsþekkingu og eykur vellíðan barna og ungmenna. „Áhersla á mikilvægi skapandi greina verður sífellt meira áberandi á alþjóðavettvangi og menn eru sammála um að þörfin fyrir færni á sviði sköpunar og nýsköpunar er meiri en nokkru sinni fyrr. Listir og aðferðir listsköpunar gegna lykilhlutverki þegar horft er til þróunar skapandi kennsluhátta, hvort sem er í þverfaglegu námi eða nemendamiðuðu námi. Rannsóknir sýna hver af annarri góð áhrif skapandi námsgreina á vellíðan og árangur nemenda heilt yfir í námi sínu. Við vitum líka að skapandi greinar eru taldar eiga sviðið á 21. öldinni og rætur þeirra liggja í menningu og listum,“ segir Sigrún.
Ísland er tónlistarþjóð
Fyrrverandi rektor Listaháskóla Íslands sagði að Ísland „væri tónlistarþjóð“. Sigrún tekur heils hugar undir þessi orð. „Tónlistarskólarnir vinna grasrótarstarf, þeir sá fræjum inn í mannlífið og sennilega felst víðtækasta og dýrmætasta tækifærið í því að nýta tónlistar- og listmenntun til að rækta og þroska mannauðinn okkar og gera að dýrmætri auðlind þjóðarinnar.“
Fylgjum eftir framsýni samkomulagsins
Félag tónlistarskólakennara mun eins og fyrr segir hvetja yfirvöld menntamála til þess að koma fram með heildarlöggjöf um tónlistarnám og tónlistarskóla. „Okkar von er að slík lög líti dagsins ljós strax næsta haust. Það eru sameiginlegir hagmunir okkar allra að fylgt verði eftir þeirri jákvæðni og framsýni sem samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna um eflingu tónlistarnáms og jöfnun aðstöðumunar felur í sér. Við þurfum að koma því svo fyrir að tónlistarskólakerfið geti gefið sem mest af sér í samræmi við þarfir einstaklinga og samfélagsins alls,“ segir Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistarskólakennara.