Framlenging á kjarasamningi FT

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum skrifaði undir samkomulag um framlengingu á kjarasamningi fyrr í kvöld. Kynning og atkvæðagreiðsla hefjast á morgun, föstudaginn 15. desember.
Samninganefndir Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa undirritað samkomulag sem felur í sér framlengingu á kjarasamningi FT. Undirritun fór fram með rafrænum hætti fyrr í kvöld.
Kjarasamningur aðila rann út 31. mars síðastliðinn. Gildistími hins nýja samkomulags er frá 1. apríl 2023 til og með 31. maí 2024.
Kynningarfundir fara fram á Teams á eftirtöldum tímasetningum
Föstudagur 15. desember
kl. 11:00 til 12:00
Laugardagur 16. desember
kl. 10:00 til 11:00
Mánudagur 18. desember
kl. 11:30 til 12:30
Mánudagur 18. desember
kl. 19:30 til 20:30
Atkvæðagreiðsla um framlengdan samning
Allsherjaratkvæðagreiðsla, meðal félagsfólks FT, um framlengdan kjarasamning hefst klukkan 12:00 á morgun, föstudaginn 15. desember og lýkur klukkan 12:00 þriðjudaginn 19. desember 2023.
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.