Framkvæmdir á Sóleyjargötu 33
Fréttir|3. júní 2015
Framkvæmdir standa yfir á orlofsíbúðum KÍ að Sóleyjargötu 33. Unnið er að endurbótum á lagnakerfi hússins og er áætlað að framkvæmdum ljúki um miðjan ágúst. Þá verður gangstígur við húsið einnig endurnýjaður í sumar.
Sökum vinsælda þessara íbúða hefur Orlofssjóður ákveðið að halda lokunum vegna framkvæmdanna í lágmarki í sumar. Gestir kunna því að verða varir við að framkvæmdir séu í gangi.
Orlofssjóður biður félagsmenn að taka tillit þessara nauðsynlegu framkvæmda en um leið vonast sjóðurinn til að gestir verðir ekki fyrir miklu ónæði.