Framhaldsskóli á krossgötum?

Fréttir|19. ágúst 2015

Ráðstefna um rannsóknir og þróunarstarf í framhaldsskólum verður haldin í Fjölbrautaskólanum við Ármúla föstudaginn 25. september næstkomandi.

Starfshættir í framhaldsskólum verður til umfjöllunar og verða kynntar fyrstu niðurstöður víðtækrar rannsóknar í níu framhaldsskólum hér á landi. Að rannsókninni standa Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, Gerður G. Óskarsdóttir, Jón Torfi Jónasson/Guðrún Ragnarsdóttir, Anna Kristín Sigurðardóttir/Sigrún Harpa Magnúsdóttir, Hafdís Ingvarsdóttir/Ásta Henriksen, Elsa Eiríksdóttir, Kristjana Stella Blöndal og Valgerður S. Bjarnadóttir, kennarar, rannsakendur og nemendur við Háskóla Íslands.

Erlendir fyrirlesarar verða þau Glenda McGregor, frá Griffith University í Brisbane, og Martin Mills, frá The University of Queensland í Brisbane. Þau kalla erindi sitt: Supporting young people´s engagement in upper secondary education: Lesson from Australia and England. 

Að ráðstefnunni standa Félag framhaldsskólakennara, Félag stjórnenda í framhaldsskólum, Samtök áhugafólks um skólaþróun, námsbraut Háskóla Íslands um kennslufræði framhaldsskóla og háskóla, Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs, rannsóknarhópur um starfshætti í framhaldsskólum og norræna öndverigssetrið Justice Through Education in the Nordic Countries. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 525 5523.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér.