Framhaldsskóli á heljarþröm
Kvennaskólinn glímir við erfiða fjárhagsstöðu og getur ekki haldið uppi því starfi sem æskilegt væri. Þetta er meðal þess sem Ásdís Ingólfsdóttir, framhaldsskólakennari í Kvennaskólanum, fjallar um nýjum Vikupósti á vef FF.
Hún segir þá staðreynd að Kvennaskólinn sé orðinn þriggja ára skóli til stúdentsprófs ekki skila sér í bættum fjárhag. „Kvennaskólinn sem hefur verið rekinn réttu megin við strikið áratugum saman í fjögurra ára kerfinu safnar nú skuldum. Skólinn er á heljarþröm,“ skrifar Ásdís og bætir við að þessi fjárhagsstaða sé afleiðing margra ára niðurskurðar, skólinn fái ekki nægt rekstrarfé og laun kennara séu skammarlega lág.
„Það var þungbært að sitja undir orðum skólameistara þar sem fjárhagsstöðu skólans var lýst. Það er líka þungbært að ganga til atkvæða um verkfallsboðun vegna yfirstandandi kjaradeilu kennara. En hjá því verður ekki komist að hefja varnarbaráttu fyrir framtíð skólastarfs í framhaldsskólum,“ skrifar Ásdís Ingólfsdóttir.