Framhaldsskólarnir skora hátt í vali á stofnun ársins

Framhaldsskólar eru vinningshafar í öllum þremur stærðarflokkum könnunar Sameykis um stofnun ársins.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FS) var sigurvegar í hópi stórra ríkisstofnana, með 90 eða fleiri starfsmenn. Vínbúðin var í öðru sæti en Fjölbrautaskólinn við Ármúla (FÁ) hneppti þriðja sætið. Fjórða sætið kom í hlut fjármála- og efnahagsráðuneytisins en Menntaskólinn við Hamrahlíð landaði fimmta sætinu.
Menntaskólinn á Egilsstöðum er stofnun ársins í flokki meðalstórra stofnana, með 40 til 89 starfsmenn. Þjóðskrá var í öðru sæti, Náttúrufræðistofnun í þriðja sæti, Ríkisendurskoðun í fjórða sæti og Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra í því fimmta.
Enn og aftur var framhaldsskóli í efsta sæti en Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er stofnun ársins í flokki lítilla stofnana, með 5 til 39 starfsmenn. Menntaskólinn á Tröllaskaga lenti í öðru sæti í þessum flokki.
Í könnun Sameykis er spurt um starfsánægju, starfsaðstæður og kjör hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga og sjálfseignarstofnunum.
Niðurstaða leiðir í ljós að framhaldsskólar skora hátt í könnuninni miðað við aðrar opinberar stofnanir. Félag framhaldsskólakennara hefur tekið saman helstu niðurstöður könnunarinnar þar sem félagsfólk FF starfar.