Framhaldsskólarnir í fjárlögum 2015

Fréttir|11. september 2014

Eins og svo margir í dag hef ég verið að rýna í fjárlagafrumvarp næsta árs. Þar er ég að glöggva mig á þeirri mynd sem er dregin af framtíð framhaldsskólans í þeirri von að eitthvað rofi til í rekstri þeirra.

Því miður virðist ekki vera í farvatninu sá nauðsynlegi viðsnúningur sem þarf að eiga sér stað í rekstri skólanna frá því sem nú er. 400 milljóna viðbótarframlag til rekstrarins sem samið var um í kjarasamningunum í vor má sín lítils þegar annars staðar er skorið niður á sama tíma og gert ráð fyrir nemendafækkun langt umfram mannfjöldaspá.Þá er beinlínis talað um hagræðingu í frumvarpinu, með styttingu framhaldsskólanáms. Í frumvarpinu er vísað í Hvítbók eins og leiðarvísi inn í framtíðina.

Fjárlagafrumvarp er rammpólitískt plagg, leiðarvísir stjórnvalda til næsta árs og ára. En sé nú þegar búið að taka pólitíska ákvörðun um skerðingu náms á framhaldsskólastigi með tilheyrandi sparnaði í framhaldsskólunum er holur hljómur í marklausum yfirlýsingum um samráð og samtal við fagstéttirnar sem best og gleggst þekkja til.

Stjórn Félags framhaldsskólakennara hefur lýst sig reiðubúna til samstarfs um stefnumótun í menntamálum á grundvelli Hvítbókar. Þau markmið sem eru sett fram í Hvítbók teljum við raunhæf en við höfum óskað eftir því að fá að koma að því að ákvarða leiðirnar sem við förum til að ná þeim markmiðum. Það liggur ekki fyrir hver skrifar Hvítbók. Enginn ritstjóri fer fyrir verkinu. Enginn úr fagstétt framhaldsskólakennara hefur verið spurður álits og þegar eftir því hefur verið spurt hafa svörin verið á þá leið að Hvítbók sé umræðugrundvöllur undir frekari stefnumótun í menntamálum á Íslandi. Samráðið og samtalið sé framundan, við alla hlutaðeigandi.

Samt hefur teningunum þegar verið kastað með nýútkomnu fjárlagafrumvarpi. Þar er talað um styttingu náms á framhaldsskólastigi og endurspegla rekstrartölur framhaldsskólanna áframhaldandi fjársvelti. Einn sykurmoli bjargar ekki lífi sveltandi manns. Í fjárlögum er hvergi gert ráð fyrir fjármagni til stuðnings nemendum í brottfallshættu, nemendum með sértæka námserfiðleika og hvergi minnst á hærri framlög í námsráðgjöf. Verði ekki snúið af þessari leið í meðferð Alþingis á frumvarpinu er framundan áframhaldandi fjársvelti framhaldsskólanna og skerðing náms á framhaldsskólastigi.

Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara.