Framhaldsskólarnir haldi sérkennum sínum

Fréttir|12. nóvember 2015

Aðalfundur Kennarafélags Menntaskólans við Hamrahlíð, sem fram fór 6. nóvember, skorar á menntamálaráðherra að standa vörð um framhaldsskóla og rýra á engan hátt innihald þess náms sem þar fer fram. Þetta er meðal þess sem kemur fram í áskorun sem fundurinn sendi menntamálaráðherra. 

Þar segir jafnframt: „Nauðsynlegt er að til séu ólíkir framhaldsskólar með fjölbreytilegar námsleiðir. Kennarafélag MH hvetur menntamálaráðherra til að tryggja að framhaldsskólarnir geti áfram haldið sérkennum sínum og áherslum, meðal annars hvað varðar námsframboð og námstíma til stúdentsprófs."