Framhaldsskólakennarar samþykkja samning

Fréttir|21. apríl 2023

Nýr kjarasamningur Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum hefur verið samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta í allsherjaratkvæðagreiðslu.

Félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við ríkið. Samningurinn er til eins árs.

Skrifað var undir kjarasamninginn í húsakynnum ríkissáttasemjara 17. apríl síðastliðinn. Atkvæðagreiðsla hófst á hádegi þriðjudaginn 18. apríl og lauk klukkan 14 í dag.

Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru svohljóðandi: 

  • Á kjörskrá voru 1.485
  • Atkvæði greiddu 808 eða 54,41%
  • Já sögðu 675 eða 83,54%
  • Nei sögðu 106 eða 13,12%
  • Auðir voru 27 eða 3,34%

Gildistími hins nýja samnings er frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.