Framhaldsskólakennarar samþykkja kjarasamning
Fréttir|7. maí 2018

Skrifað var undir kjarasamninginn í húsakynnum ríkissáttasemjara 21. apríl síðastliðinn. Gildistími samningsins er út mars á næsta ári.
Félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta.
Allsherjaratkvæðagreiðsla um samninginn hófst klukkan 12:00 miðvikudaginn 2. maí og lauk klukkan 14:00 í dag, mánudaginn 7. maí.
Skrifað var undir kjarasamninginn í húsakynnum ríkissáttasemjara 21. apríl síðastliðinn. Gildistími samningsins er út mars á næsta ári.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru eftirfarandi:
- Á kjörskrá voru: 1.498
- Alls greiddu 1.043 atkvæði eða 69,63%
- Já sögðu 720 eða 69,03%
- Nei sögðu 304 eða 29,15%
- Auðir seðlar 19 eða 1,82%