Framhaldsskólakennarar kjósa um vinnumat

Fréttir|23. febrúar 2015

Atkvæðagreiðsla um nýtt vinnumat Félags framhaldsskólakennara  og Félags stjórnenda í framhaldsskólum hófst á mánudag, 23. febrúar, og lýkur klukkan 12 næstkomandi föstudag, 27. febrúar. Kosningin er rafræn og fer fram á Mínum síðum á vef Kennarasambandsins. 

Gerð nýja vinnumatsins var í höndum verkefnisstjórnar, sem var skipuð af hálfu FF og FS þeim Elnu Katrínu Jónsdóttur, Reyni Þór Eggertssyni og Stefáni Andréssyni. Upplýsingar um nýja vinnumatið er að finna á vef verkefnisstjórnar. Verkefnisstjórnin starfaði samkvæmt ákvæðum kjarasamnings KÍ/framhaldsskóla frá 4. apríl 2014. Félagar í FF og FS samþykktu nýjan kjarasamning í apríl í fyrra með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða. Í kjarasamningnum segir að nýtt vinnumat skuli tekið upp frá og með skólaárinu 2015-2016.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum sem starfa hjá ríkisreknum framhaldsskólum. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn í launalausu leyfi, í beinni félagsaðild að KÍ, þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ.

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is,  Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður.

  • Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um upptöku nýs vinnumats FF og FS - Ríkisreknir framhaldsskólar og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.

Kosningar í Menntaskóla Borgarfjarðar, Tækniskólanum og Verzlunarskóla Íslands fara fram á sama tíma. 

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.