Framhaldsskólakennarar álykta í kjölfar samstöðufunda

Fréttir|3. febrúar 2014

Framhaldsskólakennarar efndu til samstöðufunda 3. febrúar til þess að fara yfir stöðu kjaraviðræðna við ríkið. Ályktarnir bárust frá eftirtöldum skólum að loknum fundunum. 

Borgarholtsskóli
Kennarafundur í Borgarholtsskóla mótmælir harðlega skilningsleysi stjórnvalda á stöðu framhaldsskólakennara. Frá árinu 2006 hefur verið látlaus niðurskurður til framhaldsskóla. Kaupmáttur kennara hefur rýrnað langt umfram aðrar stéttir. Krafist er leiðréttingar launa. Það er móðgun við kennara að bjóða samning sem felur í sér áframhaldandi kjararýrnun. 

 

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Fundur félagsmanna KÍ í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 3. febrúar 2014 harmar og mótmælir harðlega andvaraleysi stjórnvalda gagnvart stöðu menntunar í landinu. Grófur og margendurtekinn niðurskurður á fé til framhaldsskóla gerir skólunum ókleift að stuðla að framþróun í menntamálum sem og eðlilegri launaþróun starfsmanna sinna.Fundurinn skorar á yfirvöld mennta- og ríkisfjármála að vinna ötullega að því að koma eigin stefnu í launamálum til framkvæmda svo „að ríkið geti til frambúðar staðist samkeppnina við aðra hluta vinnumarkaðarins,“ sbr. „Áhersluatriði SNR vegna kjarasamningsgerðar 2014“. Ályktun samþykkt samhljóða

 

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Kennarafélag Fjölbrautaskólans í Garðabæ lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni sem uppi er í kjaradeilu FF og FS við ríkisvaldið og harmar metnaðarleysi stjórnvalda í málefnum framhaldsskólanna. Langvarandi niðurskurður á fjárframlögum til íslenskra framhaldsskóla er fyrir löngu orðinn óþolandi. Hann kemur í veg fyrir eðlilega launaþróun starfsmanna skólanna, ógnar nýliðun í stéttinni og grefur undan gæðum skólastarfs og þar með gæðum almennrar menntunar í landinu.

Laun framhaldsskólakennara standast hvorki samanburð við viðmiðunarstéttir innanlands né við kennaralaun í nágrannalöndunum, enda eru fjárframlög til framhaldskóla á Íslandi langt undir meðaltali OECD landa, auk þess sem dregið hefur verulega úr framlögum ríkisvaldsins til menntamála.

Kaupmáttur launa framhaldsskólakennara, miðað við aðrar stéttir, hefur auk þess rýrnað mjög mikið á undanförnum misserum. Telur fundurinn þessa þróun með öllu óásættanlega.

Því skorar fundurinn á stjórnvöld að mæta að samningaborðinu með raunhæfar tillögur til að leiðrétta kjör framhaldsskólakennara, með velferð framhaldsskólans í huga. Jafnframt lýsir fundurinn yfir fullum stuðningi við samninganefnd FF og FS og hvetur hana til að gefa ekki eftir.

F.h. Kennarafélags Fjölbrautaskólans í Garðabæ
Snædís Snæbjörnsdóttir, formaður.

 

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
Ályktun Kennarafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, samþykkt á félagsfundi mánudaginn 3. febrúar 2014.
Kennarafélag Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hefur þungar áhyggjur af stöðunni í samningaviðræðum framhaldsskólakennara og ríkisins.

Félagið áréttar mikilvægi þess að leiðrétta beri laun framhaldsskólakennara til jafns við aðra háskólamenntaða ríkisstarfsmenn og lýsir yfir fullum stuðningi við samninganefnd FF.

 

Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Fundur kennara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga samþykkir að sýna þann hug og styrk sem nauðsynlegur er til að ná fram leiðréttingu launa. Hvatt er til þess að unnið verði af fullri alvöru við að leiðrétta kjör stéttarinnar þannig að laun verði í takti við laun annarra háskólamenntaðra starfsmanna í opinberum störfum.
Ályktun fundarins er samþykkt samhljóða.

Fyrir hönd Kennarafélags FSN,
Pétur V. Georgsson
Íþróttakennari og kerfisfræðingur, trúnaðarmaður kennara í FSN.

 

Fjölbrautaskóli Suðurlands
Fjölmennur félagsfundur í Kennarafélagi Fjölbrautaskóla Suðurlands, haldinn 3. febrúar 2014, samþykkir samhljóða meðfylgjandi ályktun: Nú, þegar kjarasamningur framhaldsskólakennara er útrunninn, bólar hvorki á vilja Samninganefndar ríkisins til að ná samningum né skilningi á þeirri alvarlegu stöðu sem skólakerfið stendur frammi fyrir. Á sama tíma og kennaranám er lengt og stöðugt eru gerðar auknar kröfur til kennara með nýjum verkefnum og flókinni einstaklingsmiðaðri þjónustu, utan sem innan kennslustofunnar, hafa launakjörin hríðversnað.

Laun framhaldsskólakennara hafa hækkað minna en hjá öllum öðrum stéttum frá 2006 og eru nú 17% lakari en annarra háskólamenntaðra starfsmanna hjá ríkinu. Verri starfskjör, aukið álag og lélegri laun fyrir meiri menntun, hafa þegar valdið hruni umsókna í kennaranám og slakri nýliðun í stéttinni, þar sem meðalaldurinn er nú vel yfir 50 ár. Byrjunarlaun nýútskrifaðs framhaldsskólakennara eru um 300.000 krónur á mánuði og ef ekki verður gripið í taumana með róttækum hætti nú þegar munu þeir ekki ráða sig til kennslu og yngri kennarar flýja úr stéttinni á næstu árum, með alvarlegum afleiðingum fyrir skólakerfið.

Undanfarinn áratug hafa 12-14 milljarðar króna verið skafnir innan úr framhaldsskólakerfinu og fjárframlög ríkisins til skólanna eru nú undir sk. launastiku. Margir framhaldsskólar ramba því á barmi gjaldþrots og við þessar aðstæður segir sig sjálft að stofnanasamningar, sem ætlað er að veita svigrúm til launaskriðs, eru marklausir og skólarnir ófærir um að sækja fram og sinna þróunarstarfi.

Ekki þarf að fara orðum um áhrif þessarar sveltistefnu á nemendur og þjóðfélagið allt, þjóðfélag sem í framtíðinni verður að reiða sig æ meir á nýsköpun, hátækni- og þekkingariðnað til að halda uppi viðunandi lífskjörum í þessu landi. Þar sem nýliðun í stéttinni er nú þegar langt undir þörf þarf að spyrja þeirrar knýjandi spurningar hverjir eigi að kenna þeim sem ætla sér að starfa á þessum sviðum í framtíðinni?

Framkoma SNR í samningaviðræðum við framhaldsskólakennara undanfarið lýsir algeru skilningsleysi á þeim vanda sem við er að etja. Félagsfundur KFSu lýsir fullri ábyrgð á þeirri skömm sem við blasir á hendur stjórnvöldum og stjórnmálastéttinni á Íslandi. Fundarmenn eru tilbúnir að grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til varnar framhaldsskólastiginu og lýsa hér með eftir þjóðarsátt um endurreisn og eflingu þess. 

 

Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Félagsfundur Kennarafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja lýsir yfir miklum vonbrigðum með viðbrögð viðsemjenda framhaldsskólakennara í yfirstandandi kjarasamningum.

Staða framhaldsskólans á Íslandi er ákaflega veik miðað við stöðu framhaldsskólans í nágrannalöndunum og fjárframlög til hans á Íslandi eru langt fyrir neðan meðaltal OECD-ríkja.

Síðustu ár hefur skipulega verið dregið úr fjárframlögum til framhaldsskólans og hófst sú þróun 2006. Þetta eru ekki áhrif hrunsins, heldur skipulagður niðurskurður á framlögum til framhaldsskólakerfisins. Laun framhaldsskólakennara hafa þannig jafnt og þétt dregist aftur úr launum viðmiðunarhópa síðan 2006. Krafa framhaldsskólakennara er að þessi munur verði tafarlaust leiðréttur.

F.h. Kennarafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Einar Trausti Óskarsson formaður KFS

 

Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi
Félagsmenn FF og FS í FVA lýsa yfir þungum áhyggjum af stöðu mála, nú þegar kjarasamningur FF og FS og ríkisins er úr gildi. Undanfarin ár hafa framhaldsskólakennarar og stjórnendur í framhaldsskólum dregist gífurlega aftur úr samanburðarstéttum í launum og nú er svo komið að munurinn á dagvinnulaunum er orðinn 17%. Enginn vilji er hjá stórnvöldum til að eyða þeim mun þrátt fyrir að aðilar séu sammála um að hann sé staðreynd líkt og tíundað er í skýrslu allra aðila á vinnumarkaði sem gefin var út síðastliðið haust. Félagsmenn krefjast þess að í samningaferlinu sé launaleiðrétting okkar algjört forgangsmál.

Til viðbótar launasamdrættinum hefur stöðugur niðurskurður ríkt í skólum frá því löngu fyrir hrun. Hér í Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur niðurskurður á fjárframlögum til skólans haft mikil neikvæð áhrif. Frá árinu 2008 hefur stöðugildum við skólann fækkað um rúm 30%. Gæðum skólastarfsins fer sífellt aftur; hópar orðnir allt of fjölmennir, námsframboð takmarkað og mikið álag á kennurum. Allt bitnar þetta því miður að lokum á nemendum og námi þeirra.

F.h. Kennarfélags FVA,
Jón Gunnar Axelsson, formaður

 

Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Ályktun Kennarafélags Fjölbrautaskólans við Ármúla
Berist til Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra og Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. Þann 31. janúar síðastliðinn rann úr gildi kjarasamningur framhaldsskólakennara við ríkið. Ekkert hefur þokast í átt til samkomulags. Kennarar í FÁ harma þá stöðu sem komin er upp í yfirstandandi viðræðum við samninganefnd ríkisins og lýsa yfir fullu trausti til samninganefndar KÍ í kjaraviðræðum. Jafnframt lýsum við furðu okkar á andvaraleysi stjórnvalda í málefnum framhaldsskóla.

Undanfarin ár hafa laun framhaldsskólakennara dregist verulega aftur úr viðmiðunarhópum á opinberum markaði. Kennarar í FÁ sætta sig ekki við þróun mála og krefjast þegar í stað úrbóta af hálfu stjórnvalda.

F.h. kennarafélags FÁ
Pálmi Vilhjálmsson, formaður.

 

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
Kennarar Flensborgarskólans lýsa yfir gríðarlegum vonbrigðum með gang samningaviðræðna FF við SNR og jafnframt miklum áhyggjum af viðhorfi stjórnvalda sem einkennist af metnaðarleysi í garð framhaldsskólans. Vinnuveitendur og viðsemjendur hafa ekki fallist á að gera neinar breytingar á kjaraákvörðunum sem gagnast gætu til þess að sporna við launasigi í framhaldsskólum miðað við samanburðarhópa.

Grófur og margendurtekinn niðurskurður á fjármunum til starfsemi framhaldsskóla gerir skólana óhæfa til þess að stuðla að eðlilegri launaþróun starfsmanna sinna og til þess að bæta launakjör þeirra. Kennarar eru sérfræðingar sem starfa hjá ríkinu og vilja vera metnir til launa í samræmi við það.

Kennarafélag Flensborgarskólans stendur heilshugar á bak við samninganefnd FF/FS.

F.h. Kennarafélags Flensborgarskólans
Sigríður Ragna Birgisdóttir formaður.

 

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
Kennarafélag FAS lýsir miklum vonbrigðum með gang samningaviðræðna FF og ríkisins og jafnframt skilningsleysi stjórnvalda á brýnni þörf kjarabóta fyrir kennara. Rýrar launahækkanir og mikill niðurskurður á fjárveitingum til framhaldsskóla hafa gert launaþróun kennara með öllu óviðunandi. Því er brýn þörf á að full leiðrétting á launamismuni milli kennarastéttarinnar og samanburðahópa nái fram.

Félagið styður samningsnefnd og stjórn FF heilshugar í þeirri baráttu sem framundan er og lýsir fullum stuðningi við þær aðgerðir sem samningsnefnd telur þjóna hagsmunum kennara best.

F.h. Kennarafélags FAS
Andri Geir Jóhannsson

 

Framhaldsskólinn á Húsavík
Fundur í KFSH lýsir vonbrigðum sínum með gang samningaviðræðna Félags framhaldsskólakennara og ríkisins. Fundurinn skorar á samninganefnd FF að hvika hvergi frá kröfunni um nauðsynlega launaleiðréttingu strax og lýsir stuðningi við að fylgja henni eftir með aðgerðum.

Reynsla framhaldsskólakennara er að samningar um launaleiðréttingar til jafns við viðmiðunarhópa hafa aldrei skilað sér. Því krefjumst við þess að launaleiðréttingin komi strax við undirritun samninga. Enn fremur verði tryggt í samningum að laun kennara verði sambærileg við laun viðmiðunarhópa til frambúðar.

Við teljum að stofnanasamningar eins og þeir eru núna þjóni ekki hagsmunum kennara og viljum að þeim fjármunum verði varið til launagreiðslna til kennara samkvæmt miðlægum kjarasamningum.

F. h. Kennarafélags FSH
Smári Sigurðsson formaður

 

Framhaldsskólinn á Laugum
Kennarar við Framhaldsskólann á Laugum eru áhyggjufullir yfir samningsstöðunni. Laun framhaldsskólakennara standast ekki samanburð við laun annarra háskólamenntaðra sérfræðinga sem starfa á vegum ríkisins og ber að leiðrétta. 2,8% er óásættanleg hækkun.

Við lýsum fullum stuðningi við störf stjórnar og samninganefndar FF og FS.

 

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
Við í Kennarafélagi Framhaldsskólans í Mosfellsbæ lýsum yfir vonbrigðum með viðbrögð SNR og skilningsleysi stjórnvalda á stöðu kennara. Við styðjum samninganefnd FF heilshugar í viðræðum um launaleiðréttingu annars vegar og svo launahækkun hins vegar og til að fylgja kröfum kennara eftir með róttækum aðgerðum tafarlaust.

Við lýsum yfir mjög þungum áhyggjum af framtíð framhaldsskólanna miðað við horfurnar í kjaramálum kennara.

F.h. Kennarafélags Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
Ívar Rafn Jónsson formaður.

 

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
Fundur Kennarafélags Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum styður heilshugar stjórn og samninganefnd FF/FS í komandi viðræðum þeirra við SNR. Við treystum þeim til að fylgja eftir kröfum okkar til bættra launa óháð þeim aðferðum sem beita þarf til þess að svo megi verða.

Við núverandi ástand verður ekki unað lengur.

F.h. Kennarafélags FÍV
Einar Friðþjófsson formaður

 

Iðnskólinn í Hafnarfirði
Fundur í Kennarafélagi Iðnskólans í Hafnarfirði 3. febrúar 2014 ályktar að framhaldsskólakennarar þurfi leiðréttingu grunnlauna í samræmi við viðmiðunarhópa innan BHM. Mismunur á launakjörum þessara hópa er óviðunandi og það er réttlætismál að leiðrétta þann mun.

Kennarafélagið stendur einhuga á bak við sína samninganefnd.

F.h. Kennarafélags IH
Sæmundur Stefánsson formaður

 

Menntaskóli Borgarfjarðar
Fundur kennara í Menntaskóla Borgarfjarðar samþykkti í dag [3. febrúar] eftirfarandi ályktun: Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í menntamálum segir að menntakerfið skuli eflt með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi.
Við bendum stjórnvöldum á eftirfarandi:

  • Mismunur á meðaldagvinnulaunum í framhaldsskólum og hjá samanburðarhópum er um 17 % og mismunur á heildarlaunum nær 10%.
  • Byrjunarlaun nýútskrifaðs framhaldsskólakennara eru um 300.000 krónur á mánuði og meðaldagvinnulaun röskar 390.000 krónur.
  • Skýrsla allra aðila á vinnumarkaði frá október 2013 sýnir svart á hvítu að laun í framhaldsskólum hafa hækkað minna en hjá öllum öðrum á árabilinu milli 2006 og 2013.
  • Grófur og margendurtekinn niðurskurður á fjármunum til starfsemi framhaldsskóla gerir skólana óhæfa til þess að stuðla að eðlilegri launaþróun starfsmanna sinna og til þess að bæta launakjör kennara, náms- og starfsráðgjafa og skólastjórnenda á vettvangi stofnanasamninga.

Fundurinn brýnir samninganefndir KÍ og ríkisins til bættra vinnubragða við samningaborðið, sbr. samkomulag frá 15. febrúar 2013, til þess að félagsfólk KÍ í framhaldsskólum þurfi nú ekki enn einu sinni að fara í harða kjarabaráttu.

 

Menntaskólinn að Laugarvatni
Fundur sem haldinn var í Félagi kennara Menntaskólans að Laugarvatni mánudaginn 3. febrúar lýsir fullum stuðningi við samninganefnd og forystu Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS). Fundurinn hvetur fjármála- og mennta- og menningarmálaráðherra til að sýna starfi kennara meiri áhuga og virðingu. Fundurinn lýsir allri ábyrgð á hendur ráðherrunum vegna þeirra aðgerða sem kennarar gætu þurft að grípa til.

Leiðrétting á kjörum framhaldsskólakennara og stjórnenda í framhaldsskólum er löngu tímabær.

F.h. Kennarafélags Menntaskólans að Laugum
Helgi Helgason trúnaðarmaður

 

Menntaskólinn á Akureyri
Kennarafélag Menntaskólans á Akureyri lýsir furðu sinni og vonbrigðum yfir gangi viðræðna milli Samninganefndar ríkisins og Félags framhaldsskólakennara nú þegar kjarasamningur hefur runnið út. Kennarar lýsa yfir fullum stuðningi við þær kröfur sem samninganefnd Félags framhaldsskólakennara hefur sett fram.

Framhaldsskólakennarar hafa frá árinu 2006 dregist háskalega mikið aftur úr samanburðarhópum hvað laun og kaupmátt varðar. Á sama tíma hafa fjárframlög ríkisins til framhaldsskólanna verið skert markvisst svo launaliður þeirra er nú langt undir því sem telst raunverulegur launakostnaður. Ef borið er saman við önnur OECD ríki vex skömmin enn frekar.

Kennarar við Menntaskólann á Akureyri munu standa þétt saman og styðja forystu Félags framhaldsskólakennara ef grípa þarf til aðgerða til verndar kennarastarfinu og menntun ungmenna á Íslandi.

F.h. Kennarafélags MA
Guðjón H. Hauksson formaður

 

Menntaskólinn á Egilsstöðum
Leiðrétta verður laun framhaldsskólakennara. Kennarafélag Menntaskólans á Egilsstöðum skorar á ríkisvaldið að hefja nú þegar endurreisn framhaldsskólanna með því að greiða kennurum sambærileg laun við aðra háskólamenntaða ríkisstarfsmenn. Slök starfskjör ógna nýliðun og grafa undan gæðum skólastarfs.

Það er ólíðandi fyrir félagsfólk KÍ í framhaldsskólum að þurfa nú enn einu sinni að fara í harða kjarabaráttu til þess að tryggja samkeppnishæft skólastarf og menntun sem stenst samanburð við önnur lönd og er íslensku þjóðinni til sóma.

F.h. Kennarafélags ME
Stefanía Ósk Sveinbjörnsdóttir formaður
Björn Gísli Erlingsson trúnaðarmaður

 

Menntaskólinn á Ísafirði
Kennarar við Menntaskólann á Ísafirði lýsa yfir þungum áhyggjum og mikilli óánægju vegna stöðu samningamála. Laun kennara á Íslandi eru að engu leyti samanburðarhæf við laun sambærilegra stétta og kennara í nágrannalöndum okkar né heldur við kennaralaun í OECD ríkjunum. Mismunur á meðaldagvinnulaunum í framhaldsskólum og hjá samanburðarhópum er um 17%.

Tilboð samninganefndar ríkisins upp á 2,8% hækkun er ekki tilboð til leiðréttingar. Því er ljóst að kennarar í framhaldsskólum landsins þurfa að fara í harða kjarabaráttu til að ná fram launaleiðréttingu.

Kennarafélag Menntaskólans á Ísafirði lýsir yfir fullum stuðningi við aðgerðir Félags framhaldsskólakennara og stjórnenda.

f.h. Kennarafélags Menntaskólans á Ísafirði
Friðgerður Guðný Ómarsdóttir formaður

 

Menntaskólinn á Tröllaskaga
Kennarar og stjórnendur í Menntaskólanum á Tröllaskaga krefjast þess að nýir kjarasamningar framhaldsskólakennara við ríkið feli í sér raunverulegar kjarabætur. Að lágmarki ætti nýr samningur að fela í sér að bætt verði kjararýrnun sem framhaldsskólakennarar hafa orðið fyrir umfram viðmiðunarstéttir. Munurinn mælist 17% á dagvinnulaunum og 10% á heildarlaunum á tímabilinu 2006 til 2013. Þar að auki er þörf á að bæta starfsaðstæður og kjör ef mögulegt á að vera að auka gæði menntunar.

Slæm starfskjör ógna nýliðun í stéttinni. Margir munu hætta vegna aldurs á næstu árum en aðsókn í kennaranám hefur hins vegar minnkað og er ekki að efa að slök launakjör og lenging námsins eru aðalástæður þess.

Samþykkt einróma á fundi kennara og stjórnenda 3. febrúar 2014.

 

Menntaskólinn í Kópavogi
Kennarafélag Menntaskólans í Kópavogi ályktar eftirfarandi:
Kennarafélag Menntaskólans í Kópavogi (KMK) skorar á stjórnvöld að semja við framhaldsskólakennara strax svo eyða megi óvissu og óöryggi um skólastarf í landinu. KMK minnir á að undanfarin ár hefur launaþróun framhaldsskólakennara ekki fylgt launaþróun viðmiðunarhópa hjá ríkinu. Samkvæmt skýrslu aðila á vinnumarkaði frá 2013 hafa laun í framhaldsskólum hækkað minna en hjá öllum öðrum frá árinu 2006 til 2013. Brýnt er að leiðrétta þennan launamun á næsta samningstímabili.

Vinnuálag á kennara hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár, hópar hafa stækkað, í framhaldsskóla fyrir alla eru fleiri nemendur sem glíma við námsörðugleika og sértæk vandamál. Samfara endurteknum niðurskurði í framhaldsskólum undanfarin ár hafa verið gerðar auknar kröfur um fjölbreyttari kennsluaðferðir, aukið námsframboð og þjónustu við nemendur og forráðamenn þeirra.

KMK telur að ekki verði lengur unað við óbreytt ástand. Nú er komið að því að kjör kennara verði leiðrétt. Slök starfskjör ógna nýliðun í stéttinni og grafa undan gæðum skólastarfs.
KMK minnir stjórnvöld á mikilvægi menntunar og skólastarfs og að ekki dugi loforð um að efla menntakerfið heldur sé nú komið að því að sýna viljann í verki. Starf framhaldsskólakennara er mikilvægur þáttur í menntakerfi landsins sem verður að sýna virðingu. Það er ekki gert með því að hunsa sanngjarnar kröfur um leiðréttingu á kjörum kennara.

F.h. stjórnar KMK
Margrét S. Sigurðardóttir

 

Menntaskólinn í Reykjavík
Fundur kennara í Menntaskólanum í Reykjavík haldinn 3. febrúar 2014 harmar þá stöðu sem upp er komin í kjaramálum framhaldsskólakennara. Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við forystu FF og hvetur til aðgerða til að knýja fram úrbætur. Við núverandi stöðu verður ekki unað lengur.

F.h. Kennarafélags MR
Guðjón Ragnar Jónasson formaður

 

Menntaskólinn við Hamrahlíð
Fjölmennur fundur haldinn í Kennarafélagi Menntaskólans við Hamrahlíð 3. febrúar 2014 lýsir yfir sárum vonbrigðum yfir snautlegu tilboði samninganefndar ríkisins til hækkunar launa framhaldsskólakennara, þar sem gert er ráð fyrir launahækkun upp á 2,8% í samningi til 12 mánaða.

Fundurinn bendir á að laun framhaldsskólakennara hafa dregist langt aftur úr stéttum með sambærilega menntun og ábyrgð í starfi. Munurinn nemur nú 17% en sífellt eru gerðar meiri og flóknari kröfur til framhaldsskólakennara í daglegu starfi. Auk þess sýnir skýrsla allra aðila á vinnumarkaði frá október 2013 svart á hvítu að laun framhaldsskólakennara hafa hækkað minna en hjá öllum öðrum á árunum 2006 til 2013. Slök starfskjör ógna nýliðun og grafa undan gæðum skólastarfs.

Miskunnarlaus niðurskurður til framhaldsskólans undanfarinn áratug hefur stóraukið vinnuálag kennara og hamlar eðlilegri og brýnni þróun skólastigsins. Við það verður ekki unað lengur. Það er stjórnvöldum á Íslandi til skammar að félagsfólk KÍ í framhaldsskólum neyðist nú enn einu sinni til að fara í harða kjarabaráttu til þess að draga framhaldsskólann upp úr feni lágra launa og óviðunandi aðstöðu.

Fundurinn skorar á fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra að leita allra leiða til að leiðrétta launakjör framhaldsskólakennara, bæta starfsumhverfi stéttarinnar og koma með því í veg fyrir verkfall. Þannig verður stuðlað að því að tryggja gæði menntunar á Íslandi til framtíðar.

 

Menntaskólinn við Sund
Skyndifundur kennara Menntaskólans við Sund ályktar eftirfarandi:
Forsendur kjarasamnings KÍ/FF/FS og ríkisins eru með öllu brostnar. Rekstrarforsendur framhaldsskólanna eru algjörlega óraunhæfar og starfskjör ólíðandi. Óhjákvæmilegt er að brúa það mikla bil (17%) sem myndast hefur milli FF/FS og viðmiðunarstétta.

 

Kvennaskólinn í Reykjavík
Félagsfundur í Kennarafélagi Kvennaskólans í Reykjavík, 3. febrúar 2014 samþykkir eftirfarandi áskorun:
Áskorun Kennarafélags Kvennaskólans í Reykjavík til stjórnvalda.
Fundur í Kennarafélagi Kvennaskólans í Reykjavík mótmælir framgöngu ríkisins í samningaviðræðum við Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskólum og krefst raunhæfra úrlausna varðandi laun stéttarinnar.

Enn fremur gagnrýnir fundurinn harðlega það skeytingarleysi sem stjórnvöld sýna framhaldsskólakennurum og alvarlegri stöðu framhaldsskólanna. Launakjör framhaldsskólakennara og framlög til framhaldsskóla á Íslandi eru langt undir meðaltali aðildarríkja OECD. Slök starfskjör ógna nýliðun, grafa undan gæðum menntunar og stórauka hættuna á flótta fagmenntaðra sérfræðinga úr stétt framhaldsskólakennara.

Fundurinn skorar því á stjórnvöld að þau tryggi framhaldsskólakennurum nauðsynlega launaleiðréttingu og launahækkanir sem miða að því að laun kennara verði samkeppnishæf við laun sambærilegra hópa hjá hinu opinbera.“

Samþykkt samhljóða.
F.h. Kennarafélags Kvennaskólans í Reykjavík
Kjartan Þór Ragnarsson, formaður

 

Tækniskólinn
Félagsfundur í Kennarafélagi Tækniskólans lýsir yfir mikilli óánægju með launakjör framhaldsskólakennara, þar sem dagvinnulaun hafa dregist um 17% aftur úr launum samanburðarhópa hjá ríkisstofnunum. Grófur og margendurtekinn niðurskurður á fjármunum til starfsemi framhaldsskóla hefur um langt árabil gert framhaldsskóla óhæfa til þess að stuðla að eðlilegri launaþróun starfsmanna sinna. Skýrsla allra aðila á vinnumarkaði frá október 2013 sýnir svart á hvítu að laun í framhaldsskólum hafa hækkað minna en hjá öllum öðrum starfsstéttum á árabilinu milli 2006 og 2013.

Félagsfundur í Kennarafélagi Tækniskólans lýsir enn fremur yfir mikilli óánægju með það að vinnuveitendur og viðsemjendur hafi ekki fallist á að gera neinar breytingar á kjaraákvörðunum sem gagnast gætu til þess að sporna við launasigi í framhaldsskólum miðað við samanburðarhópa.

Félagsfundur í Kennarafélagi Tækniskólans skorar á stjórnvöld, stjórnmálastéttina og eigendur Tækniskólans ehf. að leiðrétta launakjör framhaldsskólakennara þegar í stað til þess að koma megi í veg fyrir að framhaldsskólakennarar þurfi enn einu sinni að fara í harða kjarabaráttu til þess að ná fram launaleiðréttingu og að fá boðleg laun fyrir starf sitt.

Fundurinn skorar sérstaklega á eigendur Tækniskólans ehf. (Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök iðnaðarins, Samorku, Samtök íslenskra kaupskipaútgerða og Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík) að axla samábyrgð sína á bágum launakjörum kennara skólans með því að stíga fram og beita sér fyrir bættum kjörum kennara við Tækniskólann, meðal annars með fjárframlögum til skólans, enda þjónar menntun nemenda Tækniskólans atvinnulífinu með beinum hætti. Slök launakjör ógna nýliðun í kennarastétt og grafa undan gæðum skólastarfs, þar með talið undirbúningi nemenda Tækniskólans fyrir atvinnulífið.

Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við samninganefnd Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum og hvetur hana til þess að standa fast við kröfuna um nauðsynlega launaleiðréttingu og lýsir yfir fullum vilja til að fylgja kröfunni eftir með öllum tiltækum aðgerðum.

Samþykkt einróma á mjög fjölmennum skyndifundi í Kennarafélagi Tækniskólans, mánudaginn 3. febrúar 2014.

 

Verkmenntaskólinn á Akureyri
Fundur kennara og stjórnenda í VMA lýsir vonbrigðum sínum með gang samningaviðræðna FF og FS og ríkisins. Fundurinn skorar á samninganefnd FF og FS að standa fast við kröfuna um nauðsynlega launaleiðréttingu. Ef ríkið hefur ekkert betra að bjóða kennurum en tilboð sem stór hluti almennra launamanna hefur þegar hafnað er ljóst að verkfall er yfirvofandi.

F.h. Kennarafélags VMA
Guðjón Eyjólfsson formaður

 

Verkmenntaskóli Austurlands
Kennarafélag Verkmenntaskóla Austurlands lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp í samningaviðræðum KÍ og samninganefndar ríkisins. Félagið krefst þess að launasig í framhaldsskólum verði stöðvað og tryggt verði að kaupmáttarþróun launa framhaldsskólakennara verði til jafns við aðra háskólamenntaða starfsmenn ríkisins.
Skýrsla allra aðila vinnumarkaðarins frá október 2013 sýnir svart á hvítu að framhaldsskólakennarar hafa ekki fengið sömu launahækkanir og aðrir launamenn. Kaupmáttur launa framhaldsskólakennara hefur rýrnað um 4% frá árinu 2001 en á sama tíma hefur kaupmáttur í landinu aukist um 9,7%.

Framlög til framhaldsskóla á Íslandi eru langt undir meðaltali OECD landa og stjórnvöld halda skólunum í spennitreyju fjárskorts. Launastika reiknilíkansins sem skammtar skólunum fjármagn hefur verið fölsuð þannig að skólarnir hafa ekki fengið það fjármagn sem þeim ber til þess að greiða kennurum laun.

Kennarafélag Verkmenntaskóla Austurlands krefst þess að laun framhaldsskólakennara verði leiðrétt hið fyrsta.

f.h. Kennarafélags VA
Pjetur St. Arason formaður