Framhaldsfundur aukaþings fer fram í dag

Hálft þriðja hundrað félagsmanna KÍ situr rafrænt þing Kennarasambandsins.
Framhaldsfundur Aukaþings KÍ hefst klukkan 13 í dag, þriðjudaginn 20. april. Aukaþing fór fram í nóvember í fyrra og fyrirhugað var að það stæði í tvo daga. Þinginu var hins vegar frestað að loknum fyrri deginum og því er framhaldsfundur nú haldinn. Þingfulltrúar verða um 250 talsins.
Efnt er til aukaþingsins í samræmi við samþykkt sem var gerð á 7. Þingi KÍ sem fram fór í apríl 2018. Þar segir að skipa skuli milliþinganefnd sem hafi það hlutverk að fara yfir og endurskoða skipulag, starfsemi og rekstur KÍ. Milliþinganefnd var skipuð að loknu þinginu 2018 og skilaði hún skýrslu á liðnu hausti.
Aukaþingið fer fram á Zoom en félagsfólki gefst kostur á að fylgjast með streymi frá þinginu. Ræddar og afgreiddar verða lagabreytingatillögur milliþinganefndar annars vegar og Unnars Þórs Bachmann hins vegar. Þá er gert ráð fyrir að þingið sendi frá sér ályktanir.