Framhaldsaðalfundur FT
Fréttir|4. mars 2015
Félag tónlistarskólakennara boðar til framhaldsaðalfundar föstudaginn 13. mars næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Háteigi á Grand Hótel Reykjavík.
Á framhaldsaðalfundinum FT verða teknir fyrir dagskrárliðir sem féllu undir önnur mál á dagskrá aðalfundar 21. febrúar síðastliðinn og ekki tókst að ljúka á þeim fundi. Fundurinn hefst klukkan 9.30 og fundarlok verða klukkan 14.00.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum á fundinum. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 11. mars með því að senda bréf á netfangið sigrun@ki.is eða hringja í síma 595 1111 vegna pöntunar á veitingum.