Framhaldsaðalfundur FF haldinn í dag

Fréttir|19. september 2014

Framhaldsaðalfundur Félags framhaldsskólakennara hefur samþykkt breytingar á lögum félagsins til samræmis við þær lagabreytingar sem voru samþykktar á 6. þingi Kennarasambands Íslands í apríl síðastliðnum.

Aðalfundi FF var frestað í mars síðastliðnum enda ljóst að lög KÍ myndu taka breytingum á þingi sambandsins.

Framhaldsaðalfundurinn var haldinn í húsakynnum Fjölbrautaskólans í Breiðholti í dag og voru sömu fulltrúar boðaðir til fundarins og sátu aðalfundinn í mars síðastliðnum.