Framganga viðsemjenda illskiljanleg

Fréttir|21. ágúst 2014

Samninganefndir Félags tónlistarskólakennara (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga funduðu öðru sinni þriðjudaginn 19. ágúst eftir viðræðuhlé í júlí mánuði vegna sumarlokunar hjá embætti ríkissáttasemjara. Í viðræðuáætlun aðila frá 2. desember 2013 var lagt upp með að gerð nýs kjarasamnings yrði lokið fyrir 31. janúar sl., þ.e. við lok gildistíma eldri kjarasamnings aðila.

Sigrún Grendal formaður FT segir sitt fólk verulega hugsi yfir framgöngu viðsemjenda í yfirstandandi kjaraviðræðum og að sá mikli dráttur sem hafi orðið á viðræðunum sé illskiljanlegur í því ljósi að mikill samhljómur er í samningsmarkmiðum aðila bæði varðandi launasetningu og aðra grunnþætti kjarasamningsins.

„Í kjarastefnu Kennarasambands Íslands (KÍ) er kveðið á um að launakjör kennara og stjórnenda í aðildarfélögum þess skuli vera sambærileg, að félagsmönnum KÍ með sambærilega menntun og reynslu sé ekki mismunað í launum eftir því á hvaða skólastigi þeir starfa. Að sama skapi er jafnrétti í launasetningu eitt meginmarkmið Sambands íslenskra sveitarfélaga í kjaraviðræðunum, að sambærileg og jafnverðmæt störf séu launuð með sama hætti.“

Sigrún segir stöðuna óneitanlega skrítna, „nóturnar eru þarna og við höfum efnivið í völundar tónsmíð sem myndi byggja á meginmarkmiðum samningsaðila en það er eins og neistann vanti. Við upplifum ákveðið áhugaleysi hjá viðsemjendum okkar og því miður virðist okkur sem þar standi hnífurinn í kúnni.“

Samninganefnd FT bindur samt enn vonir við að skriður fari að komast á samningavinnuna og að nýr kjarasamningur líti dagsins ljós áður en langt um líður. „Samninganefndin vill ekki trúa öðru en að samningsmarkmið Sambands íslenskra sveitarfélaga eigi við um alla félagsmenn í Kennarasambandi Íslands sem sambandið semur við en Kennarasambandið er stéttarfélag kennara og stjórnenda í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum.“

Ríkissáttasemjari hefur boðað til næsta fundar þriðjudaginn 26. ágúst.