Framboðsnefnd FSL auglýsir eftir framboðum

Félagar eru hvattir til að kynna sér hlutverk stjórna og nefnda á vef KÍ.
Framboðsnefnd Félags stjórnenda leikskóla auglýsir hér með eftir framboðum og/eða tilnefningum til trúnaðarstarfa hjá Félagi stjórnenda leikskóla fyrir næsta kjörtímabil – frá aðalfundi 2018 til 2022.
Félagar eru hvattir til að kynna sér hlutverk stjórna og nefnda á vef KÍ.
Óskað er eftir framboðum eða tilnefningum í eftirfarandi trúnaðarstörf:
- Formaður, kosinn sérstaklega. Kosið 23. til 26. nóvember 2017.
- 7 fulltrúa í stjórn (4 aðal og 3 vara). Kosið 7. til 12. mars 2018.
- 5 fulltrúa í samninganefnd (3 aðal og 2 vara). Kosið á aðalfundi
- 3 fulltrúa í skólamálanefnd (2 aðal og 1 vara). Kosið á aðalfundi
- 5 fulltrúa í framboðsnefnd (3 aðal og 2 vara). Kosið á aðalfundi
- 5 fulltrúa í kjörstjórn (3 aðal og 2 vara). Skipað á aðalfundi
- 2 fulltrúa í stjórn vísindasjóðs (1 aðal og 1 vara). Skipað á aðalfundi
- 3 skoðunarmenn reikninga (2 aðal og 1 vara). Kosið á aðalfundi
Kjósa skal formann og stjórn FSL í allsherjaratkvæðagreiðslu eigi síðar en 6 vikum fyrir aðalfund. Í önnur trúnaðarstörf er kosið á aðalfundi og fer röð eftir atkvæðamagni. Allir frambjóðendur (líka þeir sem eru í trúnaðarstörfum núna og hyggjast gefa kost á sér aftur) skulu senda póst á frambodsnefndfsl@ki.is.
Í skráningu skal koma fram:
- Nafn
- kennitala
- starfsheiti
- vinnustaður
- Mynd af viðkomandi þarf að fylgja í viðhengi.
Framboðum og tilnefningum skal skila fyrir 12. febrúar 2018. Framboðum til formanns Félags stjórnenda leikskóla skal skilað fyrir 9. nóvember 2017
Framboðsnefnd Félags stjórnenda leikskóla skipa Hugrún Sigmundsdóttir, Ingunn Ríkharðsdóttir og Aðalheiður Björk Matthíasdóttir.