Framboðsnefnd FSL auglýsir eftir framboðum

Kallað er eftir framboðum til trúnaðarstarfa hjá Félagi stjórnenda leikskóla fyrir kjörtímabilið 2026 til 2030.
Framboðsnefnd FSL hefur hafið undirbúning vegna framboða til stjórnar Félags stjórnenda leikskóla, og til annarra trúnaðarstarfa innan félagsins.
Um er að ræða eftirfarandi trúnaðarstörf
- Formaður FSL – kosinn sérstaklega
- Stjórn FSL – fimm aðalfulltrúar og þrír til vara, kosnir sérstaklega
Í eftirtalin trúnaðarstörf er kosið á aðalfundi FSL
- Kjörstjórn – 3 aðalfulltrúar og tveir til vara
- Samninganefnd 3 aðalfulltrúar og 2 til vara (þessir fulltrúar ásamt stjórn FSL mynda samninganefnd félagsins).
- Framboðsnefnd – 3 aðalfulltrúar og 2 til vara.
Þau sem hyggjast bjóða sig fram í fyrrgreind embætti eru beðin að senda tilkynningu þess efnis á netfangið fslframbod@ki.is. Í tilkynningu skal tilgreina nafn, kennitölu, vinnustað og í hvaða embætti boðið er fram í – og endilega láta mynd fylgja með.
Frestir til framboða eru þessir
- Framboð til formanns FSL þarf að berast fyrir klukkan 12 á hádegi, fimmtudaginn 8. janúar 2026.
- Framboð til stjórnar FSL þarf að berast fyrir klukkan 12 á hádegi, fimmtudaginn 15. janúar 2026.
Stjórn FSL tekur ákvörðun um dagsetningu aðalfundar FSL á næsta stjórnarfundi. Ný stjórn tekur við að loknum aðalfundi FSL 2026. Þar verður jafnframt kosið í kjörstjórn, samninganefnd og framboðsnefnd félagsins.
Stefnt er á að rafrænar kosningar til formanns og stjórnar fari fram dagana 9. til 11. febrúar 2026.