Framboðsnefnd FL auglýsir eftir framboðum og tilnefningum

Á heimasíðu er hægt að lesa sér til um hlutverk stjórnar og nefnda og greiðslufyrirkomulag vegna fundarsetu o.fl.
Samkvæmt lögum FL er hér með auglýst eftir framboðum og/eða tilnefningum til eftirfarandi trúnaðarstarfa fyrir Félag leikskólakennara fyrir næsta kjörtímabil 2018 –2022. Á heimasíðu er hægt að lesa sér til um hlutverk stjórnar og nefnda og greiðslufyrirkomulag vegna fundarsetu o.fl.
Um er að ræða eftirfarandi trúnaðarstörf:
- Formaður – kosinn sérstaklega
- 8 fulltrúa í stjórn (4 aðal og 4 vara) - röð fer eftir atkvæðamagni
- 10 fulltrúa í samninganefnd (5 aðal og 5 vara) - röð fer eftir atkvæðamagni
- 8 fulltrúa í skólamálanefnd (4 aðal og 4 vara) - röð fer eftir atkvæðamagni
- 6 fulltrúa í framboðsnefnd (3 aðal og 3 vara) - röð fer eftir atkvæðamagni
- 3 fulltrúa í kjörstjórn og 3 varamenn
Kjósa skal formann og stjórn FL í allsherjaratkvæðagreiðslu eigi síðar en 6 vikum fyrir aðalfund sem haldinn verður 14. og 15. maí 2018. Í önnur trúnaðarstörf er kosið á fundinum.
Allir frambjóðendur (líka þeir sem eru í trúnaðarstörfum núna og hyggjast gefa kost á sér aftur) skulu senda tölvupóst á frambodsnefndfl@ki.is. Í póstinum skal koma fram:
- nafn
- kennitala
- starfsheiti
- vinnustaður
- mynd í viðhengi
Framboðum og tilnefningum skal skila fyrir 22. janúar 2018.
Framboðsnefnd Félags leikskólakennara skipa:
- Margrét Inga Guðbjartsdóttir, leikskólanum Akraseli Akranesi. Netfang: margret.inga.gudbjartsdottir@akrasel.is – Sími 8933727
- Kristjana Jóna Jóhannsdóttir, leikskólanum Vallaseli Akranesi. Netfang: kristjana.johannsdottir@vallarsel.is – Sími 8972906
- Ingibjörg Guðmundsdóttir, leikskólanum Holti Reykjanesbæ. Netfang: imbagud@gmail.com – Sími 6911306