Framboðsnefnd FL auglýsir eftir framboðum

Kallað er eftir framboðum til trúnaðarstarfa innan Félags leikskólakennara. Um er ræða kjörtímabilið 2026-2030.
Samkvæmt lögum Félags leikskólakennara auglýsir framboðsnefnd félagins eftir framboðum og/eða tilnefningum til eftirfarandi trúnaðarstarfa fyrir Félag leikskólakennara fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Um er að ræða eftirfarandi trúnaðarstörf:
- Formaður – kosinn sérstaklega
- 8 fulltrúa í stjórn (4 aðalfulltrúa og 4 varafulltrúa) - röð fer eftir atkvæðamagni
- 10 fulltrúa í samninganefnd (5 aðal og 5 vara) - röð fer eftir atkvæðamagni
- 8 fulltrúa í skólamálanefnd (4 aðal og 4 vara) - röð fer eftir atkvæðamagni
- 6 fulltrúa í framboðsnefnd (3 aðal og 3 vara) - röð fer eftir atkvæðamagni
- 3 fulltrúa í kjörstjórn og 3 varamenn
Kjósa skal formann og stjórn FL í allsherjaratkvæðagreiðslu, eigi síðar en 6 vikum fyrir aðalfund FL.
Í önnur trúnaðarstörf, sem að ofan er getið, verður kosið á aðalfundinum.
Þau sem hyggjast bjóða sig fram til trúnaðarstarfa (líka þau sem nú þegar gegna slíkum störfum) skulu senda tilkynningu um framboð eigi síðar en á miðnætti 12. janúar 2026, það er, undir lok dags 11. janúar
Netfangið er flframbod@ki.is. Í tilkynningu skal tiltaka nafn, kennitölu, vinnustað og í hvaða embætti boðið er fram í – og endilega láta mynd fylgja með.
Framboðum og tilnefningum skal skila fyrir miðnætti 12. janúar 2026.