Framboðsfundur formannskandidata í næstu viku

Fréttir|19. október 2021

Frambjóðendur til formanns Kennarasambandsins koma saman á fundi miðvikudaginn 27. október.

Framboðsnefnd KÍ boðar til framboðsfundar miðvikudaginn 27. október næstkomandi. Á fundinum munu frambjóðendur til formanns KÍ kynna stefnumál sín og áherslur – auk þess að svara spurningum. 

Fundurinn fer fram í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík og hefst klukkan 19:30. Áformað er að fundinum ljúki klukkan 21:00. Félagsmenn eru velkomnir í Hvamm en einnig verður hægt að fylgjast með streymi frá fundinum. 

Edda Hermannsdóttir hagfræðingur mun stýra fundinum. 

Frambjóðendur til formanns eru:

  • Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ
  • Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla
  • Heimir Eyvindsson, dönskukennari og deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði
  • Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Seljaskóla

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér frambjóðendur hér og að sjálfsögðu fylgjast með framboðsfundinum. 

Hlekkur á streymið