Framboðsfundur formannskandídata FG

Fundurinn stendur frá klukkan 20 til 22. Frambjóðendur munu kynna sig og áherslur sínar -- auk þess að svara spurningum úr sal. Fundarstjórn verður í höndum Þórhalls Gunnarssonar. Fundurinn verður sendur út á vef Netsamfélagsins.
Framboðsnefnd Félags grunnskólakennara efnir til fundar með frambjóðendum til formanns FG í Gerðubergi, mánudagskvöldið 15. janúar næstkomandi.
Fundurinn stendur frá klukkan 20 til 22. Frambjóðendur munu kynna sig og áherslur sínar -- auk þess að svara spurningum úr sal. Fundarstjórn verður í höndum Þórhalls Gunnarssonar. Fundurinn verður sendur út á vef Netsamfélagsins. Slóðin verður kynnt síðar.
Frambjóðendur til formanns FG eru Hjördís Albertsdóttir, Kjartan Ólafsson, Kristján Arnar Ingason, Rósa Ingvarsdóttir og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og þeir sem eiga ekki heimangengt geta fylgst með á netinu.