Framboðsfundur FF – hlekkur á streymi er hér

Félag framhaldsskólakennara efnir til fundar með frambjóðendum til formanns og stjórnar félagsins.
Frambjóðendur til formanns Félags framhaldsskólakennara koma saman á kappræðufundi í kvöld, miðvikudaginn 27. apríl 2022. Fundurinn fer fram í Stórholti, sal Kennarasambandsins, og hefst klukkan 20. Fundinum verður jafnframt streymt á netinu.
Frambjóðendur til formanns FF eru Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, og Kjartan Þór Ragnarsson, kennari við Menntaskólann í Reykjavík. Þeir munu flytja framsögu og svara spurningum fundarmanna. Félagsmenn sem fylgjast með streyminu geta sent spurningar í gegnum netfangaið utgafa@ki.is. Fundarstjóri verður Þórhildur Þorkelsdóttir.
Frambjóðendur ti stjórnar FF muna kynna sig á fundinum en þau eru Baldvin Björgvinsson, Guðmundur Björgvin Gylfason, Guðmundur Arnar Guðmundsson, Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, Heimir Björnsson, Helga Jóhanna Baldursdóttir, Jóhanna Björk Guðjónsdóttir, Óli Njáll Ingólfsson, Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir, Simon Cramer Larsen, Sólveig Ebba Ólafsdóttir og Steindóra Kristín Þorleifsdóttir.
Félagsmenn FF eru hvattir til að fylgjast með fundinum.