Framboðsfundur – hlekkur á streymi

Fréttir|27. október 2021

Fylgist með framboðsfundi frambjóðenda til formanns KÍ sem fram fer í kvöld.

Frambjóðendur til formanns Kennarasambands Íslands koma saman á umræðufundi í kvöld. Fundurinn fer fram í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík og hefst klukkan 19:30. 

Fundurinn verður auk þess sendur út á netinu. 

Horfa á fundinn í streymi – ýta hér

Fyrirspurnir á meðan á fundinum stendur skal senda á utgafa@ki.is

 

Fundarstjóri verður Edda Hermannsdóttir og er gert ráð fyrir að frambjóðendur haldi stutt ávörp við upphaf fundar. Að því loknu verður opnað fyrir spurningar félagsmanna. 

Fjögur eru í framboði: 

  • Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ
  • Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla
  • Heimir Eyvindsson, dönskukennari og deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði
  • Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Seljaskóla