Framboðsfrestur hjá FL framlengdur
Fréttir|14. janúar 2014
Frestur til að skila inn framboði til trúnaðarstarfa fyrir Félag leikskólakennara rann út föstudaginn 10. janúar. Þar sem enn vantar frambjóðendur í eftirfarandi trúnaðarstörf hefur framboðsfrestur verið framlengdur til miðnættis þann 24. janúar. Um er að ræða: Stjórn KÍ, Skoðunarmenn reikninga, Kjörstjórn, Framboðsnefnd, Samninganefnd og Kynningarnefnd. Lokað hefur verið fyrir önnur framboð. Bendum á að öll nefndarstörf eru launuð.
Allir frambjóðendur (líka þeir sem eru í trúnaðarstörfum núna og hyggjast gefa kost á sér aftur) skulu fylla út rafrænt eyðublað sem finna má á síðunni Framboð til trúnaðarstarfa og skal mynd af viðkomandi fylgja í viðhengi.
Framboðsnefnd Félags leikskólakennara