Framboðsfrestur FSL rennur út á miðnætti á sunnudag

Atkvæðagreiðsla í stjórnarkjöri fer fram dagana 7. til 12. mars næstkomandi. Kjörtímabilið er fjögur ár, frá aðalfundi FSL í maí næstkomandi og til ársins 2022. Kosnir verða sjö fulltrúar; fjórir aðalmenn og þrír varamenn.
Frestur til að bjóða sig fram til stjórnar Félags stjórnenda leikskóla rennur út á miðnætti næstkomandi sunnudag, 11. febrúar.
Atkvæðagreiðsla í stjórnarkjöri fer fram dagana 7. til 12. mars næstkomandi. Kjörtímabilið er fjögur ár, frá aðalfundi FSL í maí næstkomandi og til ársins 2022. Kosnir verða sjö fulltrúar; fjórir aðalmenn og þrír varamenn.
Í önnur trúnaðarstörf verður kosið á aðalfundi FSL í maí næstkomandi. Óskað er eftir framboðum í þessi embætti.
- 5 fulltrúa í samninganefnd (3 aðal og 2 vara). Kosið á aðalfundi
- 3 fulltrúa í skólamálanefnd (2 aðal og 1 vara). Kosið á aðalfundi
- 5 fulltrúa í framboðsnefnd (3 aðal og 2 vara). Kosið á aðalfundi
- 5 fulltrúa í kjörstjórn (3 aðal og 2 vara). Skipað á aðalfundi
- 2 fulltrúa í stjórn vísindasjóðs (1 aðal og 1 vara). Skipað á aðalfundi
- 3 skoðunarmenn reikninga (2 aðal og 1 vara). Kosið á aðalfundi
Allir frambjóðendur (líka þeir sem eru í trúnaðarstörfum núna og hyggjast gefa kost á sér aftur) skulu senda póst á frambodsnefndfsl@ki.is.
Í skráningu skal koma fram:
- Nafn
- kennitala
- starfsheiti
- vinnustaður
- Mynd af viðkomandi þarf að fylgja í viðhengi.
Framboðsnefnd Félags stjórnenda leikskóla skipa Hugrún Sigmundsdóttir, Ingunn Ríkharðsdóttir og Aðalheiður Björk Matthíasdóttir.