Framboðsfrestur framlengdur hjá FG
Fréttir|12. mars 2014
Kjörnefnd Félags grunnskólakennara hefur ákveðið að framlengja framboðsfrest í trúnaðarstörf fyrir félagið til föstudagsins 21. mars næstkomandi. Kosið verður í trúnaðarstörfin á aðalfundi FG sem fram fer dagana 8. og 9. maí næstkomandi.
Óskað er eftir framboðum eða tilnefningum í eftirfarandi trúnaðarstörf:
- Fulltrúi í samninganefnd FG
- Fulltrúi í kjörnefnd FG
- Fulltrúi í stjórn KÍ
- Skoðunarmenn reikninga FG
Atkvæðamagn ræður því hverjir eru kjörnir aðalmenn og hverjir varamenn. Þeir sem hyggjast bjóða sig fram eða tilefna einstakling til trúnaðarstarfa fylli út þetta eyðublað.