Framboðsbæklingur sendur út

Fréttir|14. janúar 2014

Kynning á frambjóðendum til formanns og meðstjórnenda FF fyrir stjórnarkjör 2014 hefur verið send félagsmönnum í tölvupósti og hægt er að skoða hana hér. Þrír gefa kost á sér til formanns og tólf bjóða sig fram í sæti fjögurra meðstjórnenda og þriggja varamanna í stjórn.

Innan skamms munu birtast myndbandsviðtöl við frambjóðendur til formanns FF á heimasíðu KÍ og FF. Frambjóðendur til formanns eru Guðríður Arnardóttir, Gylfi Þorkelsson og Hrafnkell Tumi Kolbeinsson.

Félagsmenn FF eru hvattir til að kynna sér ritið og nýta kosningarréttinn þegar að kosningunum kemur. Kosningin fer fram dagana 22. til 31. janúar næstkomandi og verður skrifleg.

Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara 2014 verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík 20. til 21. mars næstkomandi.