Framboð til formanns og varaformanns

Fréttir|23. september 2021

Framboðsnefnd KÍ hefur hafið undirbúning að kosningu um nýjan formann og varaformann KÍ.

Kjörtímabil sitjandi formanns og varaformanns Kennarasambands Íslands rennur út í apríl 2022. Samkvæmt lögum KÍ kjósa félagsmenn sér formann og varaformann á fjögurra ára fresti. 

Framboðsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi:

Kjör formanns KÍ

  • Frestur til að bjóða sig fram rennur út 4. október 2021
  • Atkvæðagreiðsla fer fram dagana 2. til 8. nóvember 2021

Kjör varaformanns KÍ

  • Frestur til að bjóða sig fram rennur út 17. nóvember 2021.
  • Atkvæðagreiðsla fer fram dagana 6. til 13. desember 2021.

Tilkynningu um framboð skal senda á netfangið frambodsnefnd@ki.is fyrir miðnætti daginn sem framboðsfrestur rennur út. Í tilkynningu um framboð skal tiltaka nafn, kennitölu, aðildarfélag og vinnustað auk þess sem mynd af frambjóðanda þarf að fylgja.

Tilkynnt verður um framboð á miðlum KÍ um leið og þau berast.

 

Fréttin var uppfærð 18.10.2021