Framboð til formanns og varaformanns
Fréttir|5. desember 2025

Framboðsnefnd KÍ hefur hafið undirbúning að kosningu um nýjan formann og varaformann Kennarasambands Íslands.
Framboðsnefnd Kennarasambands Íslands kom saman til fundar í dag.
Kjörtímabil sitjandi formanns og varaformanns KÍ rennur út í apríl 2026. Samkvæmt lögum KÍ kjósa félagsmenn sér formann og varaformann á fjögurra ára fresti.
Framboðsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi:
Kjör formanns KÍ
- Frestur til að bjóða sig fram rennur út klukkan tólf á hádegi 18. desember 2025.
- Stefnt er að því að atkvæðagreiðsla fer fram dagana til 19. til 21. janúar 2026.
Kjör varaformanns KÍ
- Frestur til að bjóða sig fram rennur út á klukkan tólf á hádegi 22. desember 2025.
- Stefnt er að því að atkvæðagreiðsla fer fram dagana til 2. til 4. febrúar 2026.
Tilkynningu um framboð skal senda á netfangið frambodsnefnd@ki.is.
Í tilkynningu um framboð skal tiltaka nafn, kennitölu, aðildarfélag og vinnustað auk þess sem mynd af frambjóðanda þarf að fylgja.
Tilkynnt verður um framboð í miðlum KÍ um leið og þau berast.