Framboð í stjórn og samninganefnd FG liggja fyrir

Nú er ljóst hverjir gefa kost á sér í stjórn og samninganefnd FG fyrir kjörtímabilið 2022-2026. Enn vantar þó framboð í skólamála- og kjörnefnd félagsins og hefur frestur fyrir þær nefndir verið framlengdur.
Frestur til að bjóða sig fram til trúnaðarstarfa innan Félags grunnskólakennara rann út á miðnætti í gær. Sextán bjóða sig fram í stjórn og tíu í samninganefnd. Hins vegar voru framboð ekki nægilega mörg í skólamálanefnd og kjörnefnd og því hefur kjörnefnd ákveðið að framlengja framboðsfrest í þessar tvær nefndir.
Hægt er að senda inn framboð í skólamála- og kjörnefnd til klukkan 14 á laugardag, 21. maí næstkomandi. Í skólamálanefnd sitja sex aðalmenn og sex varamenn og í kjörnefnd sitja þrír aðalmenn og þrír varamenn. Framboð sendist á netfangið kjornefndfg@ki.is.
Félagsmenn FG ganga til atkvæða í næstu viku um hverjir munu skipa stjórn, samninganefnd, skólamálanefnd og kjörnefnd félagsins á kjörtímabilinu 2022-2026.
Atkvæðagreiðslan
- Hefst klukkan 14 þriðjudaginn 24. maí 2022
- Lýkur klukkan 14 þriðjudaginn 31. maí 2022
Frambjóðendur til stjórnar FG eru í stafrófsröð
- Anna Guðrún Jóhannesdóttir, kennari í Glerárskóla
- Alda Guðrún Áskelsdóttir, kennari í Hvaleyrarskóla
- Birna Gunnlaugsdóttir, umsjónarkennari í Breiðholtsskóla
- Eva Káradóttir, kennari í Grunnskólanum í Hveragerði
- Geirlaug Ottósdóttir, kennari í Álftamýrarskóla
- Hreiðar Oddsson, kennari í Álfhólsskóla
- Íris Árný Magnúsdóttir, sérkennari í Vallaskóla
- Jens Guðjón Einarsson, kennari í Stóru-Vogaskóla
- Jón Ingi Gíslason, formaður Kennarafélags Ísalnds og kennari í Engjaskóla
- Kolbrún Guðmundsdóttir, kennari í Sunnulækjarskóla
- Kristín Björnsdóttir, umsjónarkennari í Sunnulækjarskóla
- Lára Guðrún Agnarsdóttir, kennari í Austurbæjarskóla
- Lilja Margrét Möller, umsjónarkennari í Austurbæjarskóla
- Sigurður Freyr Sigurðarson (Bibbi), umsjónarkennari í Hlíðarskóla
- Svava Þ. Hjaltalín, kennari í Giljaskóla
- Örlygur Þór Helgason, sérkennari í Kvíslarskóla
Sextán bjóða sig fram, kosnir verða sex aðalmenn og fimm varamenn
Frambjóðendur í samninganefnd FG eru í stafrófsröð
- Alda Guðrún Áskelsdóttir, kennari í Hvaleyrarskóla
- Eðvarð Hilmarsson, umsjónarkennari í Fellaskóla
- Eygló Karlsdóttir, kennari í Grundaskóla
- Eva Káradóttir, kennari í Grunnskólanum í Hveragerði
- Guðrún Sólveig Ágústsdóttir, umsjónarkennari í Fellaskóla
- Hreiðar Oddsson, kennari í Álfhólsskóla
- Kristján Arnar Ingason, umsjónarkennari í Fellaskóla
- Sigfús Aðalsteinsson, umsjónarkennari í Giljaskóla
- Þóra Kristinsdóttir, umsjónarkennari í Vesturbæjarskóla
- Örlygur Þór Helgason, sérkennari í Kvíslarskóla
Tíu bjóða sig fram í samninganefnd, kosnir verða fimm aðalmenn og fimm varamenn
Stjórnarskipti á aðalfundi
Atkvæðamagn í atkvæðagreiðslunni ræður hverjir verða aðalmenn og hverjir varamenn. Stjórnarskipti verða á aðalfundi Félags grunnskólakennara sem áformað er að halda í október.
Kynntu þér frambjóðendur og áherslur þeirra – hlekkur á kynningarefni
Myndir af frambjóðendum til stjórnar FG