Fráleitar ásakanir um óheilindi
Fyrir hálfum mánuði var gengið frá rammasamkomulagi um launaþróun á íslenskum vinnumarkaði, sem hefur síðan verið ranglega kennt við svokallaðan SALEK-hóp. Ég segi ranglega, því bæði KÍ og BHM, sem hafa frá upphafi tekið þátt í SALEK og gera enn, neituðu að skrifa undir. KÍ sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu þar sem ástæðurnar eru útskýrðar. Þær eru tvær – útfærsla á breytingum á lífeyrisréttindum þótti óásættanleg sem og tímasetning sem miða á launaþróun næstu ára við.
Í nýlegum pistli á vefnum stundin.is gerir Ragnar Þór Pétursson kennari samkomulagið og aðkomu KÍ að því að umræðuefni. Það tengir hann við kjarasamning grunnskólakennara, sem gerður var í fyrra, og af skrifum hans má skilja að Kennarasambandið hafi þar gert vondan samning sem skili grunnskólakennurum litlum kjarabótum.
„Samningurinn var allur reistur á brauðfótum. Brauðfótum sem kennaraforystan vissi af en hélt leyndum fyrir kennurum,“ segir Ragnar Þór í pistli sínum. Hann segir síðan að kennarar hafi „í góðri trú samþykkt að fella burt næstum öll eftirstandandi réttindi í kjarasamningum fyrir „launaleiðréttingu“ á sama tíma og forystunni var fullkunnugt um að á þessa leiðréttingu kæmi feitur bakreikningur – í umboði sameinaðs vinnumarkaðar.“
Slíkt er augljóslega fráleitt og ekki svaravert ef fullyrðingarnar væru ekki svona alvarlegar. Fullyrðingar Ragnars Þórs ganga út á að segja að forysta KÍ hafi vísvitandi samið illa fyrir félagsmenn sína og síðan leynt þá upplýsingum um hver þróunin á vinnumarkaði yrði. Sem ég endurtek að er algjörlega fráleitt.
Hann hefði þurft að vera afar snjall spámaðurinn sem settist niður í maí í fyrra og sá fyrir sér þá atburðarás sem hefur orðið á vinnumarkaði síðasta eina og hálfa árið. Atburðarás sem markast meðal annars af verkföllum félagsmanna BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og í kjölfarið niðurstöðu gerðardóms sem knúinn var fram með lagasetningu ríkisvaldsins. Í framhaldi stefndi í höfrungahlaup krafna um launahækkanir sem setti í uppnám kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Sú staðreynd að sátt á vinnumarkaði var í uppnámi eftir flókna atburðarás á síðustu mánuðum er forsendan fyrir áðurnefndu rammasamkomulagi. Með því á að reyna að koma á stöðugleika – en á forsendum sem KÍ var ekki tilbúið að taka þátt í.
Vinnan sem fer fram innan SALEK-hópsins er fagleg en frá upphafi var ljóst að þar er tekist á um risamál á íslenskum vinnumarkaði. Það hefði verið fullkomlega óábyrgt af forsvarsmönnum KÍ að stinga höfðinu í sandinn og taka ekki þátt í vinnunni sem farið hefur fram innan hópsins, líka síðustu vikur. Það er hlutverk KÍ að vinna fyrir félagsmenn og það geri ég og aðrir starfsmenn KÍ, kjörnir og ráðnir, dag hvern. Ljóst er að um störf þessa hóps verður aldrei fullkomin sátt, en að gefa í skyn að innan KÍ sé unnið markvisst og vísvitandi gegn hagsmunum félagsmanna er meira en hægt er að sitja undir. Ragnar Þór hefur ítrekað lýst þeirri skoðun sinni að hann sé ekki sáttur við kjarasamning Félags grunnskólakennara og ég virði þá skoðun hans þó ég sé honum ósammála. Um samninginn verður örugglega deilt áfram, en vonandi án ásakana um óheilindi og leyndarhyggju innan Kennarasambandsins.
Með félagskveðju,
Þórður Árni Hjaltested