Fræjum sáð um sjóði KÍ

Fréttir|18. október 2024

Fulltrúar sjóða KÍ fjölluðu um allt er viðkemur sjóðamálum á fimmta FRÆ-fundi fræðslunefndar KÍ, sem fór fram í streymi miðvikudaginn 16. október.

Fulltrúar KÍ kynntu sjóði Kennarasambandsins og aðildarfélaganna á FRÆ-fundi miðvikudagsins. Linda Björk Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Orlofssjóðs KÍ hóf leika með umfjöllun um Orlofssjóðinn. Því næst tók Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, verkefnastjóri félagatals og sjóða, við og fór almennt yfir sjúkrasjóð og endurmenntunarsjóði félagsins. Freydís Soffíudóttir Þrastardóttir, þjónustufulltrúi sjóða kafaði dýpra í sjúkrasjóð KÍ.

Sólveig K. Sveinsdóttir, þjónustufulltrúi sjóða, hóf umfjöllun um endurmenntunarsjóðina með kynningu á Vísindasjóði FL og FSL, Sigrún Harðardóttir, þjónustufulltrúi sjóða, fjallaði því næst um Vonarsjóð FG og SÍ, Bára Sigurjónsdóttir, þjónustufulltrúi hjá FT, fræddi áhugasama um Starfsmenntasjóð FT og Þorbjörn Rúnarsson, sérfræðingur hjá FF lauk svo yfirgripsmiklum fræðslufundinum með kynningu á Vísindasjóði FF og FS. Jónína Hauksdóttir, varamaður KÍ og formaður fræðslunefndar sá um fundarstjórn. 

 


 

FRÆ - fundarröð Fræðslunefndar KÍ

Fundurinn var hluti af fundarröðinni FRÆ, mánaðarlegum klukkustundalöngum Teamsfundum fyrir félagsfólk á vegum fræðslunefndar KÍ. Fundaröðin hófst með fræðslufundum frá Brú lífeyrissjóði og LSR um samþykktar breytingar á reglum lífeyrissjóðanna. Í febrúar fjallaði dr. Valdís Jónsdóttir um raddheilsu. Í mars fjallaði Dísa B. Jónsdóttir hjá LSR um hverju þarf að huga að varðandi lífeyrismál við starfslok. Í apríl talaði Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir, um streitu og seiglu. 

Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur KÍ, tók svo við að sumarfríi loknu og fjallaði um öráreiti og áreitni, áður en sjóðasvið steig svo á stokk í október. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, fjallar svo um inngildandi orðræðu á síðasta FRÆ-fundi ársins, 13. nóvember.