Fræjum sáð um lífeyrismál og starfslok

Dísa B. Jónsdóttir, fagstjóri eftirlauna hjá LSR, fjallaði um lífeyrismál við starfslok á þriðja fundi FRÆ-fundaraðar Fræðslunefndar KÍ, sem fór fram á Teams í gær. Hægt er að nálgast upptöku af erindinu hér.
Starfslok og lífeyristaka valda miklum straumhvörfum í lífi fólks og því er mikilvægt að undirbúa þau tímamót vel svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun.
Dísa B. Jónsdóttir, fagstjóri eftirlauna og breytinga á lífeyrissviði LSR, fór yfir helstu þætti sem skipta máli við ákvörðun um lífeyristöku, hvaða möguleikar standa sjóðfélögum til boða og hvert umsóknarferlið er, í erindi sínu á Teams í gær.
Áhugasamir geta kynnt sér málið og horft á fundinn hér:
FRÆ-fundaröð Fræðslunefndar KÍ
Fundurinn var hluti af fundaröðinni FRÆ, reglulegum klukkustundalöngum Teamsfundum fyrir félagsfólk á vegum Fræðslunefndar KÍ. Upptökur af erindunum eru birtar að loknum fundum fyrir félagsmenn sem ekki hafa tök á að fylgast með í streymi.
Fundaröðin hófst með fræðslufundum frá Brú lífeyrissjóði og LSR um samþykktar breytingar á reglum lífeyrissjóðanna. Hér er hægt að horfa á erindi frá Brú og hér erindi LSR. í febrúar fjallaði dr. Valdís Jónsdóttir um raddheilsu kennara.
- Hér er hægt að nálgast allar upptökur af erindum FRÆ
Það eru fleiri spennandi fundir framundan. Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir, fjallar um streitu og seiglu, miðvikudaginn 17. apríl. Miðvikudaginn 11. september fer Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum, yfir öráreiti og áreitni. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, lýkur svo fundaröðinni með umfjöllun um inngildandi orðræðu miðvikudaginn 13. nóvember.