Fræðslunámskeið fyrir trúnaðarmenn

Fréttir|17. ágúst 2017

Árlegt námskeið fyrir trúnaðarmenn fer fram á Grand Hótel Reykjavík 11. október.

Fræðslunefnd KÍ heldur árlegt fræðslunámskeið fyrir nýlega og nýja trúnaðarmenn miðvikudaginn 11. október næstkomandi á Grand hótel Reykjavík, námskeiðið stendur í heilan dag.

Dagskrá:

 

09:30

Mæting, morgunhressing og setning.

10:00

Skipulag og starfsemi KÍ
Guðbjörg Ragnarsdóttir, fræðslunefnd KÍ.

10:30

Réttindi og skyldur trúnaðarmanna
Aðalheiður Steingrímsdóttir, fræðslunefnd KÍ.

11:00

Ráðningarmál og réttindi
Anna Rós Sigmundsdóttir, lögfræðingur KÍ.

12:15

Hádegismatur.

13:15

Fæðingarorlof, veikindaréttur og orlof
Guðjón Ágúst Gústafsson, þjónustufulltrúi á félagssviði KÍ.

Kl. 14:15

Könnun á einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað meðal félagsmanna KÍ
Hjördís Sigursteinsdóttir, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri.

Kl. 15:00

Fundarlok.

 

Nánari upplýsingar: 

Með nýlegum trúnaðarmönnum er átt við þá sem hafa verið trúnaðarmenn undanfarin tvö ár og með nýjum er átt við þá sem eru trúnaðarmenn frá og með upphafi þessa skólaárs. Reyndari trúnaðarmönnum verður boðið að vera með ef þeir þeir telja sig hafa þörf fyrir fræðsluna.

Viðfangsefnin á námskeiðinu eru um sameiginleg mál sem varða alla félagsmenn og trúnaðarmenn, svo sem skipulag KÍ, réttindi og skyldur trúnaðarmanna, ráðningarmál, fæðingarorlof, veikinda- og orlofsréttur, starfsumhverfismál og þess háttar. 

Athugið: Fræðsla KÍ fyrir trúnaðarmenn snýst um sameiginleg réttinda- og hagsmunamál en ekki um kjarasamninga og starfsemi aðildarfélaga KÍ því viðkomandi félag sér um þá fræðslu. 

Námskeiðið verður sent út í streymi og er hægt að fylgjast með því í hvaða nettengdri tölvu sem er. Þeir sem velja þann kost geta sent fyrirspurnir og ábendingar í tölvupósti til fundarstjóra á meðan á námskeiðinu stendur. 

Trúnaðarmenn eru beðnir að skrá sig strax hér. Mikilvægt er að merkja við hvort þið ætlið að mæta á fundarstað eða taka þátt í námskeiðinu í streymi. Námskeiðsgögn verða aðgengileg á netinu og eru trúnaðarmenn beðnir að hafa með sér fartölvur eða spjaldtölvur. 

Umfjöllun um fyrri trúnaðarmannanámskeið KÍ.