Fræðslufundi FSL í Reykjavík frestað

Fréttir|1. nóvember 2016

Fræðslufundi Félags stjórnenda leikskóla, sem halda átti miðvikudaginn 2. nóvember, hefur af óviðráðanlegum orsökum verið frestað til 23. nóvember. Fundurinn er hluti af röð fræðslufunda fyrir félagsfólk FSL um land allt. Þar er meðal annars fjallað um strúktúr FSL og lögfræðingur KÍ fjallar um réttindi félaga, skyldur og ráðningarmál svo dæmi sé tekið.