Fræðsludagur og aðalfundur

Fréttir|4. nóvember 2024

Mánudaginn 20. janúar nk. verður haldinn fræðsludagur Félags sérkennara á Íslandi á Grand Hótel í Reykjavík. Að þessu sinni leggjum við megin áherslu á læsi, líðan sérkennara, gervigreind í kennslu og snemmtæka íhlutun.


Mánudaginn 20. janúar nk. verður haldinn fræðsludagur Félags sérkennara á Íslandi á Grand Hótel í Reykjavík. Að þessu sinni leggjum við megin áherslu á læsi, líðan sérkennara, gervigreind í kennslu og snemmtæka íhlutun. 

Dagskrá ráðstefnu

08:30 - 09:00 - Skráning

09:00 - 09:20 - Setning ráðstefnu
Sædís Ósk Harðardóttur, formaður FÍS, setur ráðstefnuna og Magnús Þór, formaður KÍ, ávarpar ráðstefnugesti

09:20 - 10:30 - Vellíðan í vinnu
Vellíðan í vinnu er gagnvirkur, 70 mínútna fyrirlestur sem byggir á fræðum Jákvæðrar sálfræði. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um hvað við getum gert til að skapa eigin vellíðan í vinnu, bæði sem einstaklingar og hópur. Framsetningin er blanda fræðslu og sjálfsvinnu í anda “learn by doing” kennslufræða. Með því aukum við líkurnar á að vinnan skili sér áfram í daglegt starf sem svo stuðlar að aukinni vellíðan.
Fyrirlesari er Sylvía Guðmundsdóttir, ACC markþjálfi hjá Styrkleikum og Stefnu , sérkennslustjóri leikskóla og formaður félags um jákvæða sálfræði.

10:30 - 10:50 - Kaffihlé

10:50 - 12:00 - Snemmtæk íhlutun í 1. bekkjum grunnskólum Hafnarfjarðar
Verkefnið Snemmtæk íhlutun í 1. bekk hefur það að markmiði að finna strax við skólabyrjun þá nemendur sem hugsanlega þurfa á nánari greiningu eða stuðningi að halda og veita íhlutun við hæfi. Einnig er gengið úr skugga um að umsjónarkennarar séu meðvitaðir um fyrri greiningar nemenda og að verið sé að vinna skv. þeirri ráðgjöf sem hefur verið veitt áður. Fyrirlesari er Bjartey Sigurðardóttir talmeinafræðingur og sérkennari.

12:00 - 12:45 - Hádegismatur

12.45 - 13:30 - Gervigreind og læsi
Fyrirlesari er Brynja Stefánsdóttir kennari í Stapaskóla.

13:30 - 14:10 - Gervigreind og Lesblinda
Fyrirlesari er Ragnar Þór Pétursson, grunnskólakennari í Norðlingaskóla

14:10 - 14:20 - Kaffihlé

14:20 - 14:50 - Skólaforðun
Fyrirlesari er Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, Fjölskylduráðgjafi í Holtaskóla

14:50 - 15:50 - Faglegir leiðtogar í lærdómssamfélagi.
Hé er fjallað um hlutverk faglegra leiðtoga í eflingu lærdómssamfélags innan leikskóla og segir frá hvernig megi ýta undir að sem flestir starfsmenn innan leikskóla taki sér leiðandi hlutverk vettvangi í gegnum uppbyggingu á þróunarstarfi í leikskólunum. Einnig ræðir Halldóra hlutverk skólaþjónustu og hvernig ráðgjafar geta stutt starfsemi leikskóla. Fyrirlesari er Halldóra Guðlaug Helgadóttir,

15:50 - 16:00 - Samantekt og ráðstefnuslit

16:00 - 16:45 - Aðalfundur FÍS

Kynningarbásar verða á sínum stað.

Verð er 13.500 kr. fyrir skuldlausa félagsmenn FÍS og 15.500 kr. fyrir þá sem ekki eru í félaginu. Greiða þarf gjaldið við skráningu og greiðist það inn á reikning félagsins, reikningsnúmer: 0326-26-985 kt.670679-0129.

Grand Hótel býður öllum gestum á Ráðstefnu Félags sérkennara að kaupa sér hádegisverð. Í boði er glæsilegt hlaðborð fyrir 6.200 kr. Ef ráðsefnugestir vilja nýta sér það tilboð skal merkja við hér að neðan og greiða um leið og ráðstefnugjald er greitt. Skráning er bindandi.

Allir ráðstefnugestir fá greiðslustaðfestingu afhenta við komu á ráðstefnuna sem hægt er að nota til að fá ráðstefnugjald endurgreitt hjá sínu stéttarfélagi.
Athygli er vakin á því að skráning er bindandi og ráðstefnugjald og hádegisverður er ekki endurgreiddur ef ráðstefnugestir forfallast. Félagið greiðir fyrir ákveðinn fjölda í kaffi og mat og verður að standa við þær skuldbindingar.