Fræðsludagur FÍS 2022

Fréttir|5. desember 2022

Fræðsludagur Félags sérkennara á Íslandi var haldinn mánudaginn 28. nóvember s.l. á Grand Hótel í Reykjavík að viðstöddu fjölmenni. Aldrei áður hefur fræðsludagur FÍS verið jafn vel sóttur. Yfirskrift fræðsludagsins var að þessu sinni var: Málþroski og læsi. Hér er samantekt erinda fræðsludagisns og skjákynningar fyrirlesara.

Fræðsludagur Félags sérkennara á Íslandi var haldinn mánudaginn 28. nóvember s.l. á Grand Hótel í Reykjavík að viðstöddu fjölmenni. Aldrei áður hefur fræðsludagur FÍS verið jafn vel sóttur. Yfirskrift fræðsludagsins var að þessu sinni var: Málþroski og læsi.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, ávarpaði ráðstefnuna og ræddi meðal annars mikilvægi þess að í skólum sé fagmenntað starfsfólk, ekki síst til að tryggja jafnrétti til náms í skóla án aðgreiningar. Einnig báru farsældarlögin á góma og innleiðing þeirra, en þar er mikilvægt að ólíkar stéttir vinni saman að farsæld barna og þurfi því að stilla saman strengi sína, þrátt fyrir áskoranir vegna ólíkra áhersla stéttanna. Ásmundur Einar telur sérkennara vera lykilhóp innan skólanna til þess að innleiðing farsældarlaganna takist vel. Ræða þarf hvernig við tryggjum að börn fái þá þjónustu sem þarf og hvaða þekking og menntun þarf að vera til staðar innan skólans til þess að þjónusta nemendur. Hann velti upp spurningunni hvernig hægt sé að stíga fyrr inn í málin  og þjónusta fyrr til að tryggja farsæld barna. Aukin ráðgjöf til starfsfólk skóla sem og hagnýt námsgögn væru nauðsynlegur hlekkur til þess að bæta skólakerfið.

Rannveig Rós Ólafsdóttir, talmeinafræðingur hjá Austurmiðstöð í Reykjavík, fjallaði um birtingarmynd málþroskavanda í grunnskóla og hvernig málþroskavandi hefur áhrif á lestrarnám barna. Þar kom fram að 1 af hverjum 14 börnum glímir við málþroskavanda og hefur það áhrif á marga þætti, m.a. nám og læsi, félagsfærni, vináttu og líðan. Stuðningur og skilningur frá fagfólki skiptir sköpum fyrir nemendur. Nemendum vantar orð til að segja frá og nota styttri setningar en jafnaldrar. Þessir nemendur eiga erfitt með að læra ný orð og þurfa tíðari endurtekningar til að festa þau í minni og skilja þau. Börn með málþroskavanda spyrja sjaldnast um orð sem þau skilja ekki. Þau eru oft ekki með frumkvæði til þess og ekki vísbendingar um að nemandi skilji ekki það sem fram fer. Það þarf að huga sérstaklega að tví- og fjöltyngdum börnum. Orðafjöldi þeirra er oft einfaldari en eintyngdra jafnaldra og oft bundinn við samtalsorðaforða. Orðaforða má líkja við snjóbolta - því meiri orðaforða sem nemendur hafa, því meiri orðaforða bæta þau við sig í skóla og í gegnum lifið - þess vegna er skólaumhverfið mikilvægt. Börn sem eiga sögu um óskýrar framburð á leikskólaaldri eru líklegra til að eiga í lestrarvanda. Birtingarmynd getur birst í aðeins einum þætti málþroskans en oftast kemur hann fram í fleiri en einum þætti. Þegar hann birtist í aðeins einum þætti getur hann verið falinn því þau eru sterk í öðrum þáttum. Því er mikilvægt að hafa í huga að birtingarmynd málþroskavanda er misjöfn. Sjá má skjákynningu hennar hér. 

Helga Hrund Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Ösp fjallaði um þróunarverkefnið Okkar mál. Meginmarkmið þess er að auka samstarf skóla í Fellahverfinu og stofnana í Breiðholti með það að leiðarljósi að efla félagslegan jöfnuð, námsárangur og vellíðan barna í hverfinu. Börn sem alast upp í Fellahverfinu eiga skilið framúrskarandi menntun og fái til þess viðeigandi úrræði. Búin var til samfella á milli skólastiga þar sem markvisst er byggt ofan á orðaforða á hverju ári. Unnið er með málhljóðin í leikskólanum og bókstafi og lestur í grunnskólanum. Unnið mikið í þematengdri vinnu. Það er alltaf sýnilegt fyrir foreldra hvað er verið að vinna með hverju sinni og hvernig það er unnið. Unnið er á skapandi hátt, til dæmis er verið að kenna heimilið með Rúmfatalagersbæklingi. Það eru daglegar lestrarstundir þar sem notaðar eru mismunandi söguaðferðir. Vinsælt verkefni er til dæmis bókaormur vikunnar þar sem börnin koma með bók að heiman á eigin tungumáli til að kynna. Börnum er markvisst kennt að bera virðingu fyrir öllum tungumálum. Ef einhver bætist við í hópinn sem ekki talar sama tungumál þá skipta þau yfir í „leikskólamálið“. Upplifun starfsmanna að það hafi ekki jafn neikvæð áhrif að tala um leikskólamálið í staðinn fyrir að segja þeim að skipta yfir í íslensku. Niðurstöður voru þær að að meðaltali var 28% aukning í virkum orðaforða barnanna sem tóku þátt í þróunarverkefninu og börnum fækkað um helming sem voru undir SÍ mörkum fyrir talþjálfun. Sjá má skjákynningu hennar hér.

Sigríður Ólafsdóttirdósent við HÍ fjallaði um íslenskar og erlendar rannsóknir og hvað þær segja okkur í hnotskurn um það hvernig best sé að styðja viðtví- og fjöltyngdbörntil námsárangurs. Einnig fjallaði hún um verkefnin Íslenskur námsorðaforði og Markáætlun um tungu og tækni. Námstengt tungumál eflist í virku skólastarfi. Markvissu leikskólastarfi fylgir ríkuleg málnotkun. Málnotkun í markvissu skólastarfi ermargfaltríkulegri en heima. Börn dvelja meira í skólastarfi en með fjölskyldu sinni. Allt markvisst starf og virkni í skólastarfi færir okkur grundvallarfærni í námstengdri íslensku. Munur á samræðu við börn - opnar spurningar og lokaðar spurningar. Meiri og ríkulegri orðaforði fylgir opnum spurningum. Niðurstöðurnar skipta máli -málleg samskipti leikskólakennara og barna og notkun á sjaldgæfum orðum í samtölum við börn geta spáð fyrir um lesskilning þegar nemendur eru komin í 4. bekk. Leikum, lesum og spjöllum - aukin tækifæri fjöltyngdra leikskólabarna til að efla íslenskufærni sína. Starfsmenn fóru markvisst af stað í kjölfarniðurstaða- lögðu sig fram við að eiga í innihaldsríkum og gagnkvæmum samskiptum, börnin fengu stuðning til að taka þátt í hlutverkaleikjum, lestrarstundir miðaðar við að fjöltyngdu börnin skilji og geti spjallað um efnið. Færni í námstengdu tungumáli skólans eru auðlindir og styrkleiki barna og ungmenna. Tala um heimamál í stað móðurmáls. Eitt af hverju tveimurtví- eða fjöltyngdu börnum ná ekki lágmarksárangri í lesskilningi. Orðaforði er mikilvægur því hann er kjarni tungumálsins. Börn með góðan orðaforða hafa betri lesskilning og eiga auðveldara að átta sig á merkingu óþekktra orða sem bætast í safnið. Það þarf 98% orðskilning til að ná lesskilningi. Þrjú lög orðaforðans -  algengu orðin, námsorðaforði og námsorðaforðifræðasviða. Markviss vinna með orðum úr lagi tvö gagnleg til að minnka mun á milli nemenda. Sjá má skjákynningu hennar hér.

 

Guðbjörg Rut Þórisdóttir, læsisfræðingur hjá MMS, fjallaði um nýtt námsefni í skrift sem Menntamálastofnun undirbýr nú útgáfu á. Einnig fjallaði hún stuttlega um skriftarvanda nemenda og viðbrögð við honum. Hvert er mikilvægi þess að kenna skrift? Ritun gengur út á það að miðla. Ritunarreipið og þræðir góðrar ritunarhæfni. Börn sem handskrifa virkja sömu svæði í heila og eru virk við lestur og ritun, en það átti ekki við börn sem voru látin vélrita eða skrifa á lyklaborð. Aðrar rannsóknir styðja við mikilvægi þess að skrifa handskrift. Hæg og fyrir hafnamikil skrift getur haft neikvæð á hrif á mótun texta í huganum sem veldur því að minna er skrifað og flæði í texta rofnar. Skrift krefst mikillar athygli/vinnsluminnis þar til hún verður sjálfvirk og fyrirhafnarlaus. Skriftarfærni hefur áhrif á lestrarnám, ritun og stafsetningu. Skriftarfimi nemenda heldur áfram að þróast að minnsta kosti upp í 9. bekk, jafnvel lengur. Prufa að taka glósur með vinstri á meðan þið hlustið á fyrirlesara - meira álag á vinnsluminni og meiri erfiðleikar með að meðtaka efni fyrirlestrar. Nýlegar rannsóknir sýna að nemendur fæddir rétt fyrir aldamót lærðu námsefni betur og með árangursríkari hætti með því að skrifa með ritföngum en pikka á tölvu. Ritun er flóknari aðgerð en lestur. Ekki til matstæki á Íslandi til að greina dysgrafíu eða skriftarvanda, en til erlendis. Vandinn getur legið hjá nemandanum sjálfur (líffræðilegur), komið til vegna ónógrar kennslu og þjálfunar eða með samspili beggja þátta. Sjá má skjákynningu hennar hér.

Guðrún Björg Ragnarsdóttir, kennsluráðgjafi og doktorsnemi við HÍ fjallaði um hagnýtar leiðir til að efla lesskilning og lesfimi. Notkun beinnar kennslu þar sem byrjað er á upprifjun, næst er það kennsla, færni er svo æfð, næsta skref er leiðréttingar og svörun, nemendur æfa sig svo einstaklingslega og rifjað er upp reglulega. Fimiþjálfun sem felur í sér fimm meginþætti – námsmarkmið, efni valið, frammistaða tímamæld og tíðni hegðunar talin, staðlað hröðunarkort, framfarir að lokum endurmetnar. Örsögur eru góð leið til að vinna með orðaforða og lesskilning. Þrjú stig beinna spurninga. Í glærunum má finna mörg dæmi um æfingar og verkefni til þess að vinna markvisst með nemendum. Sjá má skjákynningu hennar hér.

Eva Rún Þorgeirsdóttir, rithöfundur og handritshöfundur sjónvarpsefnis var komin til að kynna verkefni sem hún vinnur að ásamt Blæ Guðmundsdóttur, teiknara, barnabókahöfunds og grafísk hönnuðar. Þær sameinuðu krafta sína og bjuggu til þróunarverkefni sem ber heitið Svakalega sögusmiðjan. Sögusmiðjan er hvetjandi vettvangur fyrir krakka sem vilja skrifa og teikna. Tilgangur smiðjunnar er fyrst og fremst að þátttakendur njóti þess að skapa og læri um fjölbreyttar leiðir til þess að semja sögur. Smiðjurnar hafa verið á Borgarbókasafninu. Misjafnt hvað krakkarnir vilja gera, teikna, skrifa og sumir bæði. Þá geta þau gert bæði hjá þeim. Smiðjunnar gefa krökkunum svo mikið meira, gefur þeim sjálfstraust til að skapa og leyfa ímyndunaraflinu að ráða. Stundum eru þau að byrja á sögu, klára sögu eða eru marga tíma að klára eina sögu. Hita upp með bullsögu alveg eins og íþróttamaður hitar upp fyrir æfingu. Losar um stress hjá krökkunum og þau tilbúnari í sögu vinnuna. Mikil vinna, gleði og sköpun fer í vinnuna og safna þau saman í bók sem þau fara með heim að námskeiði loknu. Sjá má skjákynningu þeirra hér.

Stjórn FÍS þakkar öllum, ráðherra, fyrirlesurum, sýnendum og þátttakendum fyrir sérlega ánægjulegan dag. 

Staðfesting á þátttöku í fræðsludeginum hefur verið send til allra þátttakenda. Hægt er að senda hana ásamt bankakvittun úr eigin heimabanka til stéttarfélaga til þess að fá styrk úr endurmenntunarsjóði.

Hér má sjá fjölmargar myndir frá Fræðsludeginum.