Fræðsludagur FÍS 2021

Fréttir|12. ágúst 2021

Miðvikudaginn 11. ágúst 2021 var haldinn fræðsludagur félagsins. Vegna Covid-19 þurftum við skyndilega að flytja fræðsludaginn yfir í rafrænt form. Að þessu sinni var fjallað um leiðir sem hægt er að fara þegar markmiðið er að vinna með hegðunarvanda barna. Við þökkum fyrirlesurum kærlega fyrir skjót viðbrögð og ykkur fjölmörgu (108) sem tókuð þátt í fræðslunni og umræðum með okkur. Við tókum upp erindin og birtum þau hér fyrir neðan til þess að fleiri geti notið.

Miðvikudaginn 11. ágúst 2021 var haldinn fræðsludagur félagsins. Vegna Covid-19 þurftum við skyndilega að flytja fræðsludaginn yfir í rafrænt form. Að þessu sinni var fjallað um leiðir sem hægt er að fara þegar markmiðið er að vinna með hegðunarvanda barna.
Við þökkum fyrirlesurum kærlega fyrir skjót viðbrögð og ykkur fjölmörgu (108) sem tókuð þátt í fræðslunni og umræðum með okkur. Við tókum upp erindin og birtum þau hér fyrir neðan til þess að fleiri geti notið. 

Sesselja Árnadóttir kennsluráðgjafi hjá farteymi austur, Reykjavíkurborg, fjallaði um
einstaklingsmiðaðar stuðningsáætlanir byggðar á virknimati. Hér er hægt að hlusta á fyrirlesturinn og skjákynning er hér. 
Sesselja deilir einnig með okkur bæklingum: Hrós, jákvæð athygli, Reglur og agi, Hvatning fyrir allan bekkinn.

Unnur Björk Arnfjörð Jóhönnudóttir verkefnastjóri, kynnti Upright, samevrópskt verkefni sem stuðlar að vellíðan unglinga með því að efla seiglu þeirra og getu
til að takast á við krefjandi verkefni unglingsáranna. Hér er hægt að hlusta á fyrirlesturinn og skjákynning er hér. 

Arndís Þorsteinsdóttir sálfræðingur, kynnti PMTO - Parent Management Training –Oregon meðferðarprógramm ætlað foreldrum barna með hegðunarerfiðleika. Hér er hægt að hlusta á fyrirlesturinn og skjákynning er hér. 

Steinunn Hafsteinsdóttir og Rafn Emilsson fagstjórar í Arnarskóla, kynntu starf skólans og hvernig þau vinna með atferlismótun og hugmyndafræðina á bak við starfið. Hér er hægt að hlusta á fyrirlesturinn og skjákynning er hér.