Fræðsludagur FÍS 2020

Mánudaginn 30. nóvember 2020 var haldinn fræðsludagur félagsins. Dagurinn var einstaklega vel heppnaður og sérstaklega í ljósi þess að hann var í fyrsta sinn í sögu félagsins algerlega rafrænn. Þema fræðsludagsins var ÍSLENSKA, en félagið vildi vekja athygli og áhuga á íslensku og stuðla að virkri notkun hennar. Sigrún Huld Auðunsdóttir gjaldkeri félagsins var fundarstjóri og gerði eftirfarandi samantekt í lok dagsins.
Mánudaginn 30. nóvember 2020 var haldinn fræðsludagur félagsins. Dagurinn var einstaklega vel heppnaður og sérstaklega í ljósi þess að hann var í fyrsta sinn í sögu félagsins algerlega rafrænn. Þema fræðsludagsins var ÍSLENSKA, en félagið vildi vekja athygli og áhuga á íslensku og stuðla að virkri notkun hennar. Sigrún Huld Auðunsdóttir gjaldkeri félagsins var fundarstjóri og gerði eftirfarandi samantekt í lok dagsins.
Freyja Birgisdóttir, dósent hjá HÍ
Freyja Birgisdóttir fjallaði um langtímarannsókn sem gerð var hjá nemendum á aldrinum 4-8 ára og spannaði 3 ár. Fyrsta rannsóknin leiddi í ljós að miklar framfarir voru á öllum sviðum læsis á milli 1., 2. og 3. bekkjar. Það vakti þó athygli var að þau sem voru slökust í 1. bekk tóku miklu framförum milli 1. og 2. bekkjar en svo hægðist á framförunum eftir það. Önnur rannsóknin leiddi í ljós að talsverð skörun væri á undanförum stærðfræði og lesskilnings og bendir það til að gengi nemenda í þessum tveimur mikilvægu viðfangsefnum ráðist að hluta til af sömu færni og er í mótun á leikskólaárunum. Þetta hefur þýðingu fyrir áherslur í leikskólastarfi. Síðasta rannsóknin fjallaði um kynjamun í lesskilningi á miðstigi. Þar voru áhugi og lestrarfælni í lykilhlutverki. Þar kemur fram að börn séu móttækileg fyrir beinum og óbeinum áróðri í skólanum og heimafyrir. Þar hafði t.d. bókaeign jákvæð áhrif á lesskilning. Kynjamunur er til staðar strax frá 1. bekk þegar horft er til ánægju af lestri. Það sem er mikilvægur áhrifavaldur, ásamt bókaeign á heimili, er að afstaða foreldra sé mjög mótandi fyrir afstöðu drengja til lestrar. Mjög athyglisvert.
Dröfn Rafnsdóttir – Miðja máls og læsis - skjákynning
Næst sagði hún Dröfn okkur frá starfsemi Miðju máls og læsis sem er hluti af skrifstofu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur. Þar starfa fimm málþroska og læsisráðgjafar sem og ráðgjafar í ÍSAT kennslu, þrír brúarsmiðir sem hafa hver um sig mismunandi hlutverk innan skólanna, fimm kennarar og fimm stundakennarar starfa í tungumálaverinu. Alls starfa núna 18 starfsmenn hjá Miðju máls og læsis og eru 2/3 starfsmanna af erlendu bergi brotnu. Hlutverk MML er að styðja við skóla sem standa frammi fyrir áskorunum í kennslu nemenda og koma þá inn í skólana með fræðslu- og ráðgjafapakka. Auk þess stendur starfsfólk fyrir mörgum skipulögðum námskeiðum og verkefnum sem eru vel sótt. Tungumálaver, sem áður var staðsett í Laugalækjarskóla, hefur nú flust yfir til Miðju máls og læsis. Dröfn benti á verkfærakistu inn á Menntastefnu Reykjavíkurborgar sem flokkuð er eftir áherslum menntastefnu borgarinnar og er hún opin öllum. Einnig hvetjum við alla til að skoða Facebook og pinterest síðu Miðjumáls og læsis sem og heimasíðu þeirra.
Sigrún Jónína Baldursdóttir og Þóra Sæunn Úlfsdóttir – Móttaka tvítyngdra barna, að ná tökum á íslenskunni - skjákynning
Sigrún og Þóra fræddu okkur um móttöku tvítyngdra og fjöltyngdra barna. Milli mála prófinu er ætlað að meta íslenskuþekkingu fjöltyngdra nemenda. Niðurstöður frá 2018 eru sláandi, en 77% nemenda sem þreyttu prófið eru fyrir neðan meðaltal. Þær lýstu fyrir okkur móttöku barna á leikskóla sem og grunnskóla og hvernig málþroska og móttökuáætlun er undirbúin og hvernig eigi að vinna hana í þrepum. Lögð er áhersla á að barnið fái tækifæri til þess að nota tungumálið sem verið er að kenna því. Mikilvægt er að vera skrefi á undan og að fyrir liggi skýr markmið um hvert er stefnt með nemandann.
Snævar Ívarsson – Nýting hljóðbóka í námi - skjákynning
Snævar sagði stuttlega frá Félagi lesblindra á Íslandi sem stofnað var 2003, en félagið er opið öllum og kostar ekkert að vera meðlimur. Hljóðbókasafn Íslands var kynnt og hvaða þjónustu það býður upp á fyrir lánþega. Í dag eru mestöllu efninu streymt í gegnum „app“ eða heimasíðu safnsins. Gott er að hafa í huga að hægt er að stilla afspilunarhraða og les þá „röddin“ hraðar ef það hentar þeim sem hlustar. Hugarkort er tækni sem nýtist mjög vel við að skipuleggja sig. Glósuforrit eins og Google Keep getur nýst mjög vel í námi, en hægt er að tala inn glósurnar og tækið skrifar fyrir þig. Talgervill eins og Ivona reader eiga allir rétt á að fá aðgang að sem hafa fengið dyslexíugreiningu. Hægt er að fá aðstoð við uppsetningu hjá Félagi lesblindra. Nýjung í Chrome web store sem heitir Read Aloud. Hér er fjöldi af tungumálum sem liggja þarna að baki, þar á meðal íslenska. Þegar búið er að setja viðbótina í vafrann birtist appelsínugulur lúður. Þegar smellt er á hann les vafrinn upp texta síðunnar. Snævar sagði frá því að mikilvægt væri að læra að hlusta og að nýta sér hljóðbækur, þetta væri þjálfun sem nauðsynlegt er að leggja í.
Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi Guðmundsson – Hlaðvarpið Ormstunga - skjákynning
Smiðjan gengur út á teymisvinnu, samþættingu námsgreina og spjaldtölvuvæðingu. Hægt er að lesa sér til um verkefnið á www.smidjan.com. Hugmyndin að hlaðvarpinu fæddist í fyrra samkomubanni þar sem nemendur voru mjög takmarkað í skólanum og þeim Hjalta og Oddi vantaði leið til að ná til nemenda. Þeir ákváðu því að taka um samtal sín á milli og þar með byrjaði hlaðvarpið. Þetta er hugsað bæði fyrir nemendur og kennara til að nýta sér. Hver þáttur er um 25 mínútur. Hver saga skiptist í 12 til 14 þætti. Þetta er góður stuðningur á meðan sagan er lesin, en kemur ekki í stað fyrir lestur sagnanna sjálfra. Markmiðið er að vekja áhuga nemenda og því valin sjónarhorn sem eru fyndin eða áhugaverð. Til þeirra hafa komið í viðtal m.a. Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur og vakti það mikinn áhuga nemenda. Tilgangurinn með þessu er að færa Íslendingasögurnar nær nemendum, en í grunninn eru þetta sögur. Í þeim er fjallað um ást, hatur, baráttur og mannlegt eðli. Tilhneigingin hefur verið að lesa þær og svara spurningum þar sem þær eru settar fram á erfiðu tungumáli. Umræður eins og þrælahald, feðraveldi og framvegis spinnst í framhaldi. Eru á spotify, apple podcast og fleiri hlaðvarpsveitum – Einnig er hægt að finna þá á facebook, instagram og twitter undir Ormstungur.



