Fræðsludagur FÍS

Fréttir|27. júní 2023

Fimmtudaginn 10. ágúst nk. verður haldinn fræðsludagur Félags sérkennara á Íslandi í Borgartúni 14, Vindheimum 7.h. 101 Reykjavík. Að þessu sinni leggjum við megin áherslu á velferð og líðan í skólastarfi. Lesa meira....

Fimmtudaginn 10. ágúst nk. verður haldinn fræðsludagur Félags sérkennara á Íslandi í Borgartúni 14, Vindheimum 7.h. 101 Reykjavík. Að þessu sinni leggjum við megin áherslu á velferð og líðan í skólastarfi. Það kostar 6.500 kr. fyrir félagsmenn FÍS og 8.500 kr. fyrir þá sem ekki eru í félaginu. Greiðist gjaldið inn á reikning félagsins, reikningsnúmer: 0326-26-985 kt.6706790129. Gefa þarf upp nafn og kennitölu, sér í lagi ef aðrir en þátttakendur greiða. 

Skráning fer fram hér. 

Dagsskrá:
kl. 08:30 Kaffi og skráning
kl. 08:50 Setning, Sædís Ósk Harðardóttir formaður
kl. 09:00 Kynning á farteymi Reykjavíkurborgar, Sesselja Árnadóttir kennsluráðgjafi
kl. 09:50 Kaffihlé
kl. 10:10 Laufey Erlendsdóttir grunnskólakennari, velferðakennsla í Gerðaskóla í Garði
kl. 11:10  Gleðiskruddurnar, Yrja Kristinsdóttir og Marit Davíðsdóttir
kl. 12:10 Hádegishlé – hægt er að kaupa hádegismat á staðnum (ekki innifalið í gjaldinu)
kl. 13:00 Geðheilbrigði og vellíðan í skólastarfi, Bergljót Gyða Guðmundsdóttir sálfræðingur , erindi og hópastarf
Í erindinu verður fjallað um geðheilbrigði og vellíðan í skólastarfi. Rætt verður um þrepaskiptan stuðning og geðrækt bæði á fræðilegum og hagnýtum nótum. Markmiðið er að þátttakendur öðlist aukinn skilning á þrepaskiptum stuðningi í skólum og hvernig stuðla má að farsælli geðheilsu barna og ungmenna með markvissu geðræktarstarfi.
kl. 14:15 Kaffihlé
kl. 14: 35 Geðheilbrigði og vellíðan í skólastarfi, Bergljót Gyða Guðmundsdóttir sálfræðingur, erindi og hópastarf.
kl. 16:00 Fræðsludegi lýkur

 

Skráning fer fram hér.