Fræðsludagur 2019

Nýjar tæknilausnir í skóla margbreytileikans. Dagurinn var haldinn 27. nóvember 2019.
Fræðsludagur félagsins var haldinn á Grand Hótel mánudaginn 25. nóvember sl. Hann var í senn fróðlegur, frábær og spennandi.
Lilju Alfreðsdóttur var tíðrætt um jöfn tækifæri til náms og er svo sannarlega hægt að fullyrða að allir þátttakendur fræðsludagsins vinna að því á hverjum degi að jafna tækifæri nemenda. Hún talaði líka um mikilvægi sérkennara í skólastarfinu og hversu mikilvæg snemmtæk íhlutun er til að jafna tækifæri allra nemenda til náms.
Hanna Rún kynnti fyrir okkur hana Emmu sem var svo dásamleg að leyfa okkur að sjá hvernig hún nýtir augnstýribúnað í náminu og til tjáskipta. Hanna Rún kynnti okkur fyrir forritið Snap Core First, en fljótlega verður stigið risastórt skref fram á við þegar forritið kemur út á íslensku. Forritið verður aðgengilegt á iPad og í Windows stýrikerfinu. Það er ekkert þessu líkt til á Íslandi í dag. Það má því segja að um byltingu verði um að ræða þegar það kemst í almenna notkun. Það er klárlega sóknartækifæri fyrir áhugasama að þýða Comunicator forritið sem hún kynnti fyrir okkur meðal annars. Það eru mörg tækifæri sem notkun forrita til tjáskipta opnar fyrir þá nemendur okkar sem eiga erfitt með eða jafnvel geta ekki tjáð sig með röddinni. Skjákynning.
Sigrún frá TMF-Tölvumiðstöðinni minnti á heimasíðuna þeirra sem er stútfull af fróðleik og aðgengileg þeim sem vilja. Stundum er hægt að gera ótrúlega hluti með einföldum hlutum eins og til dæmis lyklaborði eins og hún kynnti fyrir okkur. Talgervlar eru eitt sem nýtist okkar skjólstæðingum mikið í náminu, lífi og starfi. Það er ánægjulegt að heyra að Ivona Reader er hægt að hlaða niður endurgjaldslaust í Android snjalltæki auk þess sem svo mörg smáforrit eru til sem auðvelda nemendum okkar lestur. Það verður gaman að kynnast íslensku Siri - henni Emblu sem íslenskar stafræna umhverfið okkar. Skjákynning.
Það var einstaklega gaman er að sjá hversu fjölbreytt úrval efnis stendur sérkennurum til boða. Námsefnisgerð einstaklinga, innflutningur spila, skynörvunarefnis, félagsfærniefnis og svo væri lengi hægt að telja hjálpar okkur að gera kennsluna okkar fjölbreytta, áhugaverða og nær áhugasviðs nemenda. Eftirfarandi aðilar kynntu vörur sínar á fræðsludeginum:
- A4
- ABC skólavörur
- Tölum saman og Orðagull
- Spilavinir
- Öryggismiðstöðin
- Sérkennslusamlagið
- SOL-bækurnar
Bergþóra bætti í verkfærikistuna okkar með kynningu á mörgum skemmtilegum smáforritum til dæmis Lazy Monster, Toontastic, Choiseworks, Seesaw, Tiny Hands, Audiomemos, Bitsboard og hvernig má nota þessi forrit á fjölbreyttan hátt. Seesaw Class veitir kennurum aukna möguleika til að deila námsefni með heimilinum auk þess að hægt er að deila með fleiri fjölskyldumeðlimum óska foreldrar þess. Áhugaverður - og um leið svo mikilvægur punktur sem Bergþóra endaði á var að þeir nemendur sem þyrftu að nýta sér sérkennslu í framtíðinni væru þeir nemendur sem ekki gætu nýtt sér tæknina. Skjákynning.
Ásthildur og Bjartey enduðu frábæran fræðsludag á að fjalla um námsefnið sitt Orðagull og Tölum saman, en búið er að uppfæra bæði nýverið. Orðagull fékk heiðursverðlaun félagsins á aðalfundi þess fyrr um morguninn. Vonandi fá þær stöllur styrk til áframhaldandi þróunar og uppfærslu námsefnisins, enda smáforritið mikið notað um land allt af kennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum, foreldrum og svo mætti lengi telja, en forritið er aðgengilegt endurgjaldslaust og til mikils að vinna að svo verði áfram eftir uppfærslu. Skjákynning Ásthildar og skjákynning Bjarteyjar.
Félag sérkennara á Íslandi þakkar fyrirlesurum, þeim sem voru með kynningar og ekki síst öllum sem sóttu fræðsludaginn fyrir að gera fræðsludaginn svo ánægjulegan. Samveran var frábær og vonandi hafa þátttakendur tekið með sér nýtt veganesti eftir daginn. Hér má sjá fjölda mynda frá bæði aðalfundinum og fræðsludeginum.