Fræðsla um birtingarmyndir kynbundinnar mismununar nauðsynleg

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, forkona jafnréttisnefndar KÍ, stýrði fundinum en framsögur fluttu þær Edda Ýr Garðarsdóttir grunnskólakennari og Erla Guðrún Gísladóttir grunnskólakennari. Þær sögðu frá yfirlýsingu sem hátt í 800 konur innan menntageirans skrifuðu undir í lok árs. Þá reifuðu þær nokkar reynslusögur kvenna sem hafa orðið fyrir kynbundinni mismunun og ofbeldi innan skólakerfisins.
Jafnréttisnefnd KÍ boðaði fulltrúa KÍ og aðildarfélaganna til fundar á föstudag til þess að ræða #Metoo-byltinguna, kynferðisofbeldi, kynferðisáreitni og kynbundin mismunun í skólum og menntastofnunum.
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, forkona jafnréttisnefndar KÍ, stýrði fundinum en framsögur fluttu þær Edda Ýr Garðarsdóttir grunnskólakennari og Erla Guðrún Gísladóttir grunnskólakennari. Þær sögðu frá yfirlýsingu sem hátt í 800 konur innan menntageirans skrifuðu undir í lok árs. Þá reifuðu þær nokkar reynslusögur kvenna sem hafa orðið fyrir kynbundinni mismunun og ofbeldi innan skólakerfisins.
„Þrátt fyrir að konur séu í meirihluta í skólum og öðrum menntastofnunum hafa þær þar ekki farið varhluta af þeirri mismunun sem viðgengst víða í skólasamfélaginu. Káf, ofbeldi, áreitni, yfirgangur, hunsun, meiðandi athugasemdir og smættun á vinnuframlagi kvenna - allt þetta og meira til er hluti af reynslu kvenna í menntageiranum. Konur hafa starfað við þessar aðstæður áratugum saman, margar hrista þetta af sér, aðrar eru snillingar í hnyttnum tilsvörum, sumar ná að snúa sig úr aðstæðunum, nokkrar tilkynna áreitnina en fjöldinn allur af konum segir ekkert. Sumar lýsa þeirri tilfinningu að vera orðnar „samdauna vandamálinu‟, aðrar hafa hægt um sig af ótta við viðbrögð og afleiðingar fyrir þær sjálfar," segir í yfirlýsingu kvennahópsins sem áður er getið.
Miklar umræður voru um málið á fundinum og þóttu reynslusögurnar varpa ljósi á hve alvarleg staða kvenna er innan menntastofnana og að um sé að ræða ástand sem muni ekki hverfa nema gripið sé til aðgerða.
Fundargestir voru sammála um að efna þurfi til markvissrar fræðslu um birtingarmyndir kynbundinnar mismununar og afleiðingar hennar. Mikilvægt þykir að slík fræðsla verði á hendi opinberra aðila og mennta- og menningarmálaráðuneytið leiði slíka vinnu -- og ekki verði um tímabundið átak að ræða heldur verði horft til langs tíma.
Ljóst er þetta brýna málefni er hvergi útrætt og verður umræðunni meðal annars fram haldið á 7. þingi Kennarasambandsins í næsta mánuði.
MYNDIR FRÁ FUNDINUM Á FACEBOOK.
Tengdar fréttir:
- Tekið verði á kynferðislegu ofbeldi innan menntastofnana -- 21. desember 2017
- Rjúfum þögnina -- 22. nóvember 2017