Fræðsla fyrir kennara um stuðning við börn á flótta

Boðið er upp á almenna fræðslu fyrir kennara um stöðu og réttindi flóttafólks og áhrif áfalla á líðan, heilsu og hegðun barna. Val er um tvær dagsetningar, þriðjudaginn 17. janúar og fimmtudaginn 19. janúar. Námskeiðin fara fram á netinu og hefjast bæði klukkan klukkan 14.
Markmið fræðslunnar er að stuðla að betri skilningi á lífi barna á flótta og kanna hvað kennarar geta gert til þess að styðja við nám og vellíðan þeirra. Kynntar verða hugmyndir að verkfærum og stuðningi sem stendur börnunum til boða.
Fræðslan er samstarfsverkefni Barna- og fjölskyldustofu, Kennarasambands Íslands, Rauða krossins og UNICEF á Íslandi. Um netnámskeið er ræða sem standa frá 14 til 15.45 í tvö skipti, annars vegar þriðjudaginn 17. janúar og hins vegar fimmtudaginn 19. janúar.
Dagskrá
14:00 Dagskrá hefst
14:05 Hugtakanotkun og staða réttinda barna á flótta, UNICEF á Íslandi
14:15 Áföll og sálfélagslegur stuðningur við börn á flótta, Rauði krossinn
14:45 Flóttabörn og farsældarlögin, Barna- og fjölskyldustofa
15:05 Hlé
15:10 Reynsla kennara af móttöku barna á flótta
15:25 Spurningar og svör
15:45 Dagskrá lýkur
