FRÆ: Útivist, birta og hreyfing

Fréttir|4. apríl 2025

Róbert Marshall, útiþjálfari og leiðsögumaður, fjallaði um útiveru og hreyfingu og ekki síst, hið mikilvæga jafnvægi á milli vinnu og einkalífs á þriðja FRÆ-erindi ársins.

Róbert Marshall, fjallaleiðsögumaður og útiþjálfari og leiðsögumaður, flutti erindið Situr þú inni? Er öll von er úti? í þriðja FRÆi ársins, þriðjudaginn 1. apríl á Teams. Róbert fræddi félagsfólk um jafnvægi, valdeflingu og lífsfyllingu í gegnum hreyfingu og útivist. Hann fjallaði um það hvernig hreyfing og áskoranir í útivist geta aukið lífshamingju og bætt árangur í starfi og fjölskyldulífi. Hvernig hægt sé að gera lífstílsbreytingu sem stuðli að meira jafnvægi í lífinu. 

Í fyrirlestrinum var farið yfir markmiðasetningu, hreyfingu, undirbúning, útbúnað, fróðleik, skipulag göngu, göngu- og hreyfihópa, næringu og allt sem tilheyrir einfaldri hreyfingu í náttúrunni.

Einnig býður Róbert upp á skipulagða göngu fyrir þátttakendur, einskonar verklega útfærslu á fyrirlestrinum. Nánari upplýsingar um hana verða birtar síðar en um er að ræða 2-3 tíma gönguferð síðdegis þar sem farið yfir grunnatriði í undirbúningi, fatnaði, gönguhraða og næringu. Fjallað um hvernig þjóðsögur, saga svæðanna, örnefni, jarðfræði, dýralíf og gróðurfar magna náttúruupplifun okkar og tengingu við landið.

 


Um fyrirlesara

Róbert Marshall, fjallaleiðsögumaður og útiþjálfari, starfaði um árabil á vettvangi fjölmiðla og stjórnmála áður en hann gerði algera stefnubreytingu í sínu lífi og helgaði kröftum sínum alfarið útivist, hreyfingu og tónlist fyrir rétt tæpum áratug. Hann er stjórnarformaður og stofnandi Útihreyfingarinnar auk þess að reka útgáfufélagið Vertu úti sem rekur samnefnda vefsíðu, gefur út tímaritið Úti og framleiðir sjónvarpsþættina Úti sem sýndir hafa verið á Ríkisútvarpinu.

Markmið miðilsins er að varpa ljósi á alla þá fjölbreyttu útivist sem land og okkar og jörð hefur upp á að bjóða ásamt því að segja sögur af áhugaverðu fólki og ævintýrum þess úti í náttúrunni. Útihreyfingin er hreyfing um hreyfingu. Alls konar hreyfingu. Í stærsta æfingasal landsins. Úti.